breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er gott að fá það fram að Ísland stendur einna best í heimi þegar kemur að jöfnuði og ekki eingöngu vegna Gini-stuðulsins, það eru aðrir mælikvarðar líka sem rétt er að taka fram. Varðandi tekjur og varðandi eignamyndun í landinu undanfarin ár þá er allt á sömu leið: Ójöfnuður er að minnka, jöfnuður er að aukast. Lægstu laun hafa hækkað umfram hæstu laun og svo mætti áfram telja. Þess vegna er mikilvægt þegar við ræðum félagslegu kerfin okkar og þá stöðu sem upp er komin að muna að þau hafa gríðarleg áhrif. Það er það sem skiptir máli. Við sjáum hvernig það hefur áhrif á Gini-stuðulinn hvaða áhrif félagslegu kerfin hafa. Við getum svo verið sammála um það að við erum að glíma við allt of háa verðbólgu og alltaf hátt vaxtastig og því þarf að breyta. Það er bara þannig að tillögur Samfylkingarinnar, sem annars vegar boðar aðhald á útgjaldahliðinni og hins vegar aðhald á tekjuhliðinni, fara ekki saman við þau markmið sem þurfa að vera í ríkisfjármálum. Að stórauka skattheimtu landsins til að stórauka útgjöld ríkisins er ekki til þess fallið að ná þeim stöðugleika í efnahagsmálum sem að er stefnt ef fylgt er eftir orðum Seðlabankans.
Ég tek eftir því, frú forseti, að hv. þingmaður talar um að ríkisstjórnin hafi útvistað verkefni til Seðlabankans og þá er mér spurn: Hvað á hv. þingmaður við? Er hann á móti því að Seðlabankinn sé sjálfstæður í miðlun peningastefnu sinnar? Er hann á móti því að Seðlabankinn sé sjálfstæður í miðlun á peningastefnunni við ákvörðun vaxta? Vill hann færa það vald til ríkisstjórnarinnar? Getur það verið? Ég held að svo sé ekki en ég vil fá nánari útskýringar á þessu, frú forseti.