154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:00]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024, eða svokallaðan bandorm. Það má nefna þennan bandorm bandorm nr. 1 því að við eigum eftir að fá til umfjöllunar tvö frumvörp til viðbótar, bandorm 2 og bandorm 3, þar sem m.a. verður fjallað um gistináttaskatt og krónutöluskatt á rafbíla.

Á ytri vef Alþingis segir um þetta frumvarp að markmið þess sé að breyta ýmsum lögum sem tengjast tekju- og gjaldahlið ríkissjóðs í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2024. Þar segir um helstu breytingar að lagt er til að krónutöluskattar, þ.e. kolefnisgjald, olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, bifreiðagjald og gjald á áfengi og tóbak, hækki um 3,5%. Sama gildir um gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og sérstakt gjald til Ríkisútvarpsins. Þá er gert ráð fyrir hækkun á lágmarksfjárhæð bifreiðagjalds sem lagt er á fólksbíla. Þá er einnig lagt til að gerðar verði breytingar á eftirlitsgjaldi til að standa undir áætluðum kostnaði við rekstur Fjármálaeftirlits og skilavalds innan Seðlabanka Íslands. Gert er ráð fyrir lækkun gjaldhlutfalls vegna greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara í samræmi við áætlaðan rekstrarkostnað stofnunarinnar. Lagt er til bráðabirgðaákvæði sem koma skal í veg fyrir að kostnaðarþátttaka heimilismanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum aukist við það að tengingar við tekjur maka voru afnumdar. Lagt er til að sóknargjöld verði lækkuð og að breytingar verði gerðar á fjárhæð losunargjalds samkvæmt lögum um loftslagsmál. Þess ber að geta að fallið hefur verið frá þessari tillögu um lækkun á sóknargjöldum. Þá er stefnt að hækkun úrvinnslugjalds á hjólbarða og gerðar breytingar á verðmætagjaldi sjókvíaeldis. Gert er ráð fyrir að tekjuskattur lögaðila hækki tímabundið til eins árs um 1 prósentustig. Flestar aðrar breytingar tengjast framlengingu bráðabirgðaákvæða. Þar er um að ræða breytingar á alls 21 lögum, ef ég fer rétt með.

Tillaga er í frumvarpinu um óbreyttar viðmiðanir í vaxtabótakerfinu og hún leiðir til þess að útgjöld vegna vaxtabóta nema 2,8 milljörðum kr. á árinu 2024. Gert er ráð fyrir að hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við gerð hættumats verði allt að 140 millj. kr.

Þá eru það tekjur. Verðlagsuppfærsla krónutölugjalda mun auka tekjur ríkissjóðs um 3,1 milljarð kr. Hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra nemur samtals um 320 millj. kr. Áætlað er að hækkun lágmarksfjárhæðar bifreiðagjalds skili 1,3 milljörðum kr. í viðbótartekjur. Áætlað er að breytingar á verðmætagjaldi vegna sjókvíaeldis skili ríkissjóði um 630 millj. kr. Tekjuáhrif á ríkissjóð nema samtals um 5.300 millj. kr., eða 5,3 milljörðum kr.

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 3. minni hluta. Íslenskt efnahagsumhverfi hefur einkennst af öfgum. Kaupmáttur, byggingamarkaður, gengi krónunnar, verðbólga og vextir; allt er þetta undirorpið tíðari og meiri sveiflum á Íslandi en í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Þessum óstöðugleika fylgir aukinn kostnaður fyrir almenning. Í því ljósi er hlutverk opinberra fjármála í sveiflujöfnun mikilvægara hér en í öðrum löndum. Ábyrg fjármálastjórn og gott samspil fjármálastefnu og peningastefnu er til þess fallið að draga úr þessum sveiflum á meðan rangar ákvarðanir í því þensluástandi sem nú ríkir munu ýta undir frekari verðbólgu. 3. minni hluti harmar að í frumvarpi þessu séu ekki skýr merki um að unnið sé að auknum stöðugleika í íslensku efnahagsumhverfi.

Þriðji minni hluti lýsir áhyggjum af veikleikum í undirliggjandi afkomu ríkissjóðs sem hafa verið ljósir frá árinu 2019. Í álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2024–2028 er athygli vakin á því að fyrri fjármálaáætlanir hafi ekki gengið eftir. Þar segir að ástæðurnar séu af tvennum toga. Annars vegar hafi efnahagsframvindan ekki verið í samræmi við hagspár sem lagðar voru til grundvallar. Hins vegar sé um að kenna lausung í fjármálastjórninni sjálfri, þar sem ófyrirséður tekjuauki hafi verið nýttur til aukinna útgjalda í stað þess að fylgja boðaðri stefnu um ráðstöfun slíkra tekna. Þetta telur 3. minni hluti vera til marks um alvarlega bresti í efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar.

Þegar þensla er í efnahagsmálum er erfitt að rökstyðja hallarekstur ríkissjóðs, enda ýtir hann undir frekari þenslu, hefur neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð og dregur úr svigrúmi til að mæta áföllum í framtíðinni. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs muni halda áfram að aukast að nafnvirði út allt tímabil þessarar ríkisstjórnar. Í því ljósi er áhyggjuefni að ríkisstjórnin nýti ekki frumvarp þetta til þess að styrkja tekjustofna hins opinbera með ábyrgum og varanlegum hætti, t.d. með því að fylgja tillögum Viðreisnar um að leggja kolefnisgjald á stóriðju til samræmis við annan atvinnurekstur og með breytingum á veiðigjaldi til að það endurspegli betur markaðsvirði aflaheimilda. Eins er áhyggjuefni að ríkisstjórnin hafi ekki með fjárlagafrumvarpi því sem er til umræðu um þessar mundir framkvæmt ítarlegt mat á útgjöldum ríkisins og forgangsraðað verkefnum til að mæta ábendingum fjármálaráðs um að draga úr hallarekstri. Gott fyrsta skref í því hefði verið að minnka yfirbyggingu hins opinbera og fækka ráðuneytum.

Í frumvarpi þessu eru lagðar til verulegar hækkanir á ýmsum sköttum og gjöldum. Í stað þess að breytingar á gjaldtöku hins opinbera miði að því að styrkja tekjustofna ríkisins með ábyrgum og varanlegum hætti, líkt og Viðreisn hefur talað fyrir, er sú leið farin í frumvarpinu að hækka fyrst og fremst gjöld sem almenningur greiðir. Almenningur á Íslandi greiðir þegar eina hæstu skatta í heimi án þess að njóta þjónustu í samræmi við það. Viðreisn leggur áherslu á það að staðinn sé vörður um heimilin í landinu og ekki síst millistéttina sem hefur borið mestan þunga í yfirstandandi verðbólguástandi.

Undantekning frá þessu, virðulegi forseti, er að í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er lagt til að tekjuskattur lögaðila verði hækkaður tímabundið til eins árs um 1 prósentustig. Er áætlað að sú hækkun muni skila ríkissjóði tæplega 6,4 milljörðum kr. Við þessa ákvörðun gerir 3. minni hluti tvær athugasemdir. Annars vegar er athyglisvert hvað ríkisstjórn með ráðherra Sjálfstæðisflokksins í fjármála- og efnahagsráðuneyti er skattaglöð. Skattar skulu hækkaðir af þessari ríkisstjórn en þeir mega að hennar mati ekki bitna sérstaklega á hinum breiðu bökum, t.d. með kolefnisgjaldi á stóriðju eða markaðsgjaldi í sjávarútvegi. Hins vegar er skattahækkunin að sögn meiri hlutans hluti af aðgerðum stjórnvalda til að draga úr þenslu í hagkerfinu. Álagningin fer þó fram með árstöf og kemur því ekki fram fyrr en á árinu 2025 þrátt fyrir að nauðsynlegt sé að draga úr þenslu eins fljótt og unnt er. Þessi aðgerð er því hvorki til þess fallin að styrkja tekjustofna hins opinbera varanlega né að ná tökum á verðbólgu hratt og vel.

Þá kemur að sóknargjöldum. Í frumvarpinu er lagt til að föst krónutala sóknargjalda verði lækkuð úr 1.192 kr. á mánuði í 1.107 kr. fyrir árið 2024. Kemur sú lækkun til vegna þess að í meðferð Alþingis á frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 voru sóknargjöld hækkuð tímabundið en í frumvarpinu er lagt til að sú hækkun verði nú felld niður. Í umsögnum Þjóðkirkjunnar og Víðistaðakirkju er þessu mótmælt og lagt til að sóknargjöld verði þess í stað hækkuð „að lágmarki samkvæmt vísitölu“. Meiri hluti nefndarinnar hefur lagt fram breytingartillögu við ákvæði frumvarpsins um sóknargjöld þess efnis að gjöldin haldist óbreytt árið 2024. Meiri hlutinn beinir því jafnframt til fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra í nefndaráliti sínu að þeir hugi að varanlegri útfærslu á tilhögun sóknargjalda í stað ákvarðana í formi bráðabirgðaákvæða hvert ár.

Þriðji minni hluti tekur undir það að best væri að koma á varanlegu fyrirkomulagi varðandi sóknargjöld. Hann telur þó rétt að í stað þess að kveðið sé á um tiltekna fjárhæð gjaldanna í lögum færi betur á því að ríkið hætti innheimtu sóknargjalda fyrir trú- og lífsskoðunarfélög og viðkomandi félög ákveði þess í stað fjárhæð félagsgjalda sinna og annist sjálf innheimtu þeirra, líkt og önnur félagasamtök gera. Það væri mikilvægur liður í því að auka sjálfstæði Þjóðkirkjunnar og annarra trú- og lífsskoðunarfélaga í landinu.

Þá er komið að krónutölusköttum. Hinir svonefndu krónutöluskattar, þ.e. kolefnisgjald, olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, bifreiðagjald, áfengisgjald og tóbaksgjald, sem kveðið er á um í lögum að nemi hvert fyrir sig tiltekinni fjárhæð, eru hækkaðir í frumvarpinu um 3,5% með flatri aðferðafræði. Sama gildir um gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjald. 3. minni hluti gerir athugasemd við það að pólitísk ákvörðun liggi ekki að baki breytingum á hverjum lið fyrir sig. Til dæmis er hækkun á bensín-, olíu- og kolefnisgjöldum til þess fallin að styðja við markmið ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en það er hækkun á útvarpsgjaldi ekki. Breytingar á þessum gjöldum lýsa því skorti á pólitískum áherslum eða forgangsröðun.

Hagstofa Íslands gerir ráð fyrir því að verðbólga á næsta ári verði 5,6%. Gangi það eftir lækka krónutöluskattar að raunvirði um 2,4%. 3. minni hluti telur það ekki vera náttúrulögmál að umrædd gjöld hækki í takt við verðlag og virðist ríkisstjórnin vera sammála í ár, ólíkt árinu í fyrra. Hækkanirnar sem ríkisstjórnin leggur til eru þó til þess fallnar að hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs um 0,1% samkvæmt greinargerð með frumvarpinu. 3. minni hluti telur að í frumvarpinu ætti almenn hækkun krónutöluskatta ekki að vera hærri en langtímamarkmið Seðlabanka Íslands um verðbólgu, eða 2,5%, og að hækkunin ætti ekki að gilda jafnt um alla liði heldur ættu gjöld á bensín, olíu og kolefnislosun að endurspegla mengunarvarnasjónarmið sem væru til þess fallin að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Þá vil ég, virðulegur forseti, minnast á hjúkrunarheimili. 3. minni hluti vill vekja á því athygli að 800 einstaklingar bíða eftir því að komast á hjúkrunarheimili, þar af 400 í Reykjavík. Á Landspítala dvelja nú 93 einstaklingar sem búið er að útskrifa en vegna skorts á úrræðum komast þeir hvergi. Á sama tíma þurfa um 70 veikir einstaklingar að dvelja á göngum spítalans þar sem sjúkrastofur skortir. Ástand þetta lýsir ekki góðri hagstjórn. Dvöl á spítala er dýrasta umönnunarúrræðið og þrátt fyrir að hjúkrunarrými séu dýr myndi það margborga sig að fjölga þeim, bæði til að skapa veikum eldri einstaklingum úrræði við hæfi en ekki síður til að létta á Landspítala og auka möguleika hans á að sinna þeim sem þurfa á sértækum úrræðum spítalans að halda. Landspítali má ekki vera dýrasta hjúkrunarheimili landsins.

Þá vil ég gera að umtalsefni breytingartillögu sem varðar tollfrelsi á vörur upprunnar í Úkraínu. Undir lok vorþings árið 2022 samþykkti Alþingi einróma frumvarp fjármálaráðherra um niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Var það mikilvægur táknrænn stuðningur við Úkraínu vegna innrásar Rússa og áhrifa átakanna á efnahag landsins. Niðurfellingin var tímabundin til eins árs en að þeim tíma loknum lögðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar ekki fram frumvarp um að framlengja undanþáguna, þrátt fyrir ríkan vilja til þess á þinginu og meðal tiltekinna ráðherra. Evrópusambandið felldi einnig niður tolla á sama tíma og Ísland en hefur síðan framlengt gildistíma niðurfellingarinnar a.m.k. fram til júní 2024.

Það er mikilvægt að styðja úkraínskt atvinnulíf enda hefur úkraínska þjóðin orðið fyrir gífurlegum samdrætti á sama tíma og hún stendur vörð um landamæri sín og þá heimsmynd og gildi sem öryggi Vesturlanda byggist á. Því leggur 3. minni hluti til breytingu á frumvarpinu um að niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu verði komið á aftur og að hún gildi til 12 mánaða.

Að framansögðu virtu leggur 3. minni hluti til eftirfarandi breytingu:

Á eftir 31. gr. komi nýr kafli, XXII. kafli, Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með einni nýrri grein, 32. gr., svohljóðandi: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. skal til og með 31. desember 2024 fella niður tolla af vörum sem fluttar eru inn á tollsvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Við ákvörðun um uppruna vöru skal fara eftir ákvæðum fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Úkraínu sem tók gildi 1. júní 2012.

Ég hef lokið lestri nefndarálits, virðulegur forseti, en mig langar til, af því að ég hef nú ágætistíma, að fara yfir fáein atriði sem mér finnst skipta máli nú þegar við setjum lög um fjármál ríkisins fyrir næsta ár. Eitt af þeim málum eru samskipti ríkis og sveitarfélaga. Það hefur legið fyrir lengi að lögbundin þjónustuskylda sveitarfélaganna hefur verið aukin. Má þar nefna aukna þjónustu við fatlaða einstaklinga, m.a. vegna lagabreytinga sem settar voru hér á hinu háa Alþingi. Það hefur skilið eftir gat hjá sveitarfélögunum sem ekki hefur verið fyllt. Í fjárlögum síðasta árs var gerð sú breyting að sveitarfélögum var ætlaður stærri hluti af skatttekjum, þ.e. útsvarsprósenta var hækkuð og tekjuskattur lækkaður á móti. Nú stendur til að gera þetta varanlegt og er það vel. Hins vegar hafa sveitarfélögin haldið því fram að þessi breyting ein og sér dugi ekki. Meira þurfi að koma til. Um þetta hefur verið rætt á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga og vonandi finnst lausn sem dugar til framtíðar.

Annað sem mig langar að nefna er sú krafa sem nú er sett á sveitarfélög að bjóða upp á leikskóla allt frá því að börn verða eins árs. Þetta hefur vafist fyrir mörgum sveitarfélögum, bæði vegna kostnaðar við uppbyggingu innviðanna en ekki síður vegna þess að fagmenntað fólk skortir til að sinna svo ungum börnum. Að mínu mati þarf að fara fram umræða um samspil fæðingarorlofs og vistunar barna á leikskóla. Er hægt að gera þá kröfu á sveitarfélögin að þau sinni börnum allt frá eins árs aldri eða þarf að skoða það að lengja fæðingarorlof á móti? Atvinnulífið kallar á að foreldrar mæti til vinnu en börn þurfa að sjálfsögðu samveru við foreldra sína á fyrstu stigum ævinnar og því þarf að mínu mati að fara fram umræða um þetta samspil leikskóla og fæðingarorlofs. Það sem er barninu fyrir bestu skal ávallt hafa forgang við ákvarðanatöku, segir í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og út frá því eigum við hér á hinu háa Alþingi að vinna.

Annað sem mig langar að nefna, virðulegur forseti, er kjarasamningsgerðin sem er fram undan. Það er morgunljóst að það verður talsverð áskorun að takast á við það verkefni. Það hefur vakið athygli mína að heyra ráðherra segja að aðilar vinnumarkaðarins verði bara að semja, en ríkið er nú einu sinni stærsti launagreiðandi landsins og það hefur auðvitað mikil áhrif á rekstur ríkissjóðs hver framvindan verður. Það hafa margir öfundað Norðurlöndin af því fyrirkomulagi kjarasamningsgerðar sem hefur þróast hér í áratugi, í þríhliða viðræðum milli launþega, atvinnurekenda og stjórnvalda. Það fyrirkomulag hefur gefist vel og er algjörlega nauðsynlegt að því verði viðhaldið. Hins vegar gætir mikils óþols í garð ríkisins þegar kemur að stöðugleika og hárri vaxtabyrði heimilanna, en ekki síst stöðunni á vinnumarkaði. Því er hætt við að erfitt verði að ná saman. Það er erfitt að sjá stéttarfélög ná saman um kröfugerðir þar sem staða þeirra og félagsmanna þeirra er bara ólík. Í kjarasamningum frá 2019 var lögð áhersla á krónutöluhækkanir sem gögnuðust lægstu tekjuhópunum best en aðrir hópar hafa lýst því, m.a. í umsögnum um fjárlagafrumvarpið, að ekki hafi orðið nein kaupmáttaraukning í þeirra röðum allt þetta tímabil og því þurfum við að breyta.

Það er sammerkt með öllum þessum hópum að verðbólga og háir vextir eru farin að naga burt þá kaupmáttaraukningu sem náðist í síðustu kjarasamningum og það verður ekki látið líðast að slíkar fjármagnstilfærslur eigi sér stað til lengri tíma. Þá mun staðan á húsnæðismarkaði skipta máli þegar kemur að gerð kjarasamninga og þar mun reyna á ríkisstjórnina. Allt of stór hluti launa fer í að greiða af lánum og húsnæðisverð er hér í hæstu hæðum og hætt við að svo verði áfram nema til komi veruleg aukning á framboði. Þar hafa stjórnvöld skyldum að gegna, bæði ríki og sveitarfélög. Við aðstæður sem þessar er algerlega nauðsynlegt að skoða aðrar leiðir til að ná niður verðbólgu og skapa hér stöðugleika. Ákveðnir aðilar innan verkalýðshreyfingarinnar hafa lýst yfir vilja til þess. Fordæmin eru til staðar, m.a. í þjóðarsáttinni frá árinu 1990. Ég get hins vegar ekki sagt að viðbrögð vinnuveitenda við þessum yfirlýsingum verkalýðshreyfingarinnar veki einhverjar sérstakar vonir um að einhver áhugi sé til staðar á að ráðast í gerð kjarasamninga sem stuðli að stöðugleika. Slíkir samningar byggja ekki bara á hóflegum launabreytingum heldur einnig á því að keyra niður verðlag.

Virðulegur forseti. Við þurfum á stöðugleikasamningum að halda. Fjölmargar umsagnir hafa borist um þetta frumvarp en ekki síður um fjárlögin sjálf. Mig langar, með leyfi forseta, að vitna í nokkrar þeirra.

Umsögn BHM heitir Spennið beltin og segir það ýmislegt um hvernig þau líta á stöðuna. Þar segir:

„Frá árinu 2000 hefur kaupmáttur meðallauna á Íslandi sveiflast fjórum sinnum meir en OECD meðaltalið. Það þarf því engan að undra að stöðugleiki sé efstur í huga almennings samkvæmt viðhorfskönnun BHM. Aðstæður í efnahagslífinu eru afar krefjandi fyrir hagstjórnaraðila og erfitt gæti verið að svara ákalli almennings um aukinn stöðugleika. Kaupmáttur hefur dregist saman fjóra ársfjórðunga í röð í fyrsta skipti frá 2012 og verðbólgan jókst hlutfallslega um nær helming á ársgrundvelli milli ágústmánaða 2022 og 2023.“

Reykjavíkurborg bendir á eftirfarandi:

„Tekjustofnar sveitarfélaganna, útsvar og fasteignagjöld, eru viðkvæmir fyrir hagsveiflum og útgjöldin næm fyrir launahækkunum, verðbólgu og vöxtum. Sveiflur í efnahagsumhverfinu hafa með þeim hætti mikil áhrif á rekstur og fjárhagslega stöðu sveitarfélaganna til lengri og skemmri tíma. Þjónusta sveitarfélaganna byggir á því að jafnvægi ríki í rekstri þegar kemur að tekjum, launum og öðrum rekstrarútgjöldum, auk fyrirsjáanleika í fjármagnskostnaði vegna nauðsynlegrar uppbyggingar innviða, þ.e. mannvirkja, gatna, lóða og lagna, vegna þjónustu við íbúa og fyrirtæki. Ytri aðstæður síðustu missera, sveiflur í hagkerfinu og staða efnahagsmála almennt hafa að ósekju falið í sér áskoranir fyrir rekstur Reykjavíkurborgar sem og annarra sveitarfélaga, og á sinn þátt í því að ógna sjálfbærni þeirra og getu til að takast á við og sinna eðlilegu hlutverki sínu í samræmi við lög Alþingis og stefnumörkun málaflokka, ekki bara stefnumörkun borgarinnar, heldur stefnumörkun ríkisins og samfélagsins alls.“

Samband íslenskra sveitarfélaga bendir á málaflokk fatlaðs fólks í umsögn sinni en þar segir:

„Sveitarfélögin tóku yfir málefni fatlaðs fólks árið 2011 og fylgdi verkefninu fjármagn í formi útsvarshækkunar sem að stærstum hluta fór til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Árið 2021 námu þessar tekjur 26 milljörðum kr. Ítarleg og vönduð greining nefndar undir formennsku Haraldar Líndal Haraldssonar sýnir að útgjöld sveitarfélaga á sama ári til þjónustu við fatlað fólk nam 40,2 milljörðum kr. og hallinn á málaflokknum því 14,2 milljarðar kr. sem svarar næstum upp á krónu til rekstrarhalla sveitarfélaga á því ári. Meðal skýringa má nefna að með lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir komu auknar kröfur um þjónustu, en þær voru ekki kostnaðarmetnar og ekkert fjármagn fylgdi þeim. En ekki síður hefur fötluðu fólki með langvarandi stuðningsþarfir fjölgað mun meira en áætlað var.

Uppsafnaður halli frá 2018 til 2021 nemur 31,8 milljörðum kr. á verðlagi hvers árs, en tæpir 40 milljarðar kr. á föstu verði 2023. Til að koma til móts við þennan halla var útsvarsprósenta hækkuð um 0,22 prósentustig, u.þ.b. 5 milljarðar kr., frá ársbyrjun 2023. Lauslegur framreikningur að tilliti teknu til útsvarshækkunar sýnir að hallinn frá 2018 til 2023 gæti verið um eða yfir 70 milljarðar kr. á verðlagi 2023 verði ekkert að gert.“

Samkeppniseftirlitið, sem hefur verið í fréttum dagsins, vekur í umsögn sinni athygli á vanfjármögnun stofnunarinnar og bendir á að vegna forgangsröðunar verkefna hefur eftirlitið í hverfandi mæli getað sinnt rannsóknum á mögulegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu og opinberum samkeppnishindrunum. Það þarf að bæta úr þessu, virðulegur forseti.

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins er talað tæpitungulaust og þar fær rekstur ríkissjóðs ekki háa einkunn. Þar segir m.a.:

„Tekjum umfram áætlanir hefur verið varið til aukinna útgjalda í stað sparnaðar. Skollaeyrum skotið við viðvörunum fjármálaráðs.“

„Hallarekstur ríkissjóðs hefur verið fjármagnaður með aukinni lántöku og því fylgir vaxtakostnaður, með öðrum orðum er dýrt að reka ríkið „með tapi“. Vaxtagjöld þarf að fjármagna með auknum tekjum, lækkun annarra útgjalda eða frekari lántöku. Eðli máls samkvæmt sitja þarfari verkefni á hakanum þegar fjármagnskostnaður tekur til sín sífellt meira súrefni. Þetta eru þau fórnarskipti sem stjórnvöld standa frammi fyrir þegar kemur að skuldasöfnun.“

„Vaxtagjöld eru þriðji stærsti fjárlagaliður fyrirliggjandi fjárlagafrumvarps.

Aðeins lífeyristryggingar og Landspítali eru fjárfrekari liðir en vaxtagjöld. Kappsmál ætti að vera að draga úr þessum kostnaði við skuldasöfnun ríkissjóðs […] þ.e. til greiðslu vaxta og verðbóta, eða um 10% allra þeirra fjármuna sem renna í ríkissjóð. Fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp gerir ráð fyrir að vaxtagjöld ársins 2024 verði tæpir 111 milljarðar kr.“

Í umsögn Alþýðusambandsins segir:

„Miðstjórn ASÍ ályktaði um fjármálaáætlun þann 19. apríl síðastliðinn þar sem aðgerða- og úrræðaleysi ríkisstjórnar var harðlega gagnrýnt. Í ályktuninni sagði m.a.: „Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki að finna neinar raunverulegar aðgerðir sem stuðla að lækkun verðbólgu á þessu ári. Í áætluninni er heldur ekki að finna nein áform um að styðja við afkomu heimilanna eða taka á þeim bráðavanda sem ríkir á húsnæðismarkaði eða í heilbrigðiskerfi.““

Þá tala sveitarfélög á landsbyggðinni fyrir bættri vetrarþjónustu Vegagerðarinnar og auknum samgöngubótum. Það er einnig sammerkt með þeim öllum að kalla eftir bættri heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, eins og segir í umsögn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi:

„Brýnt er efla frekar þjónustu heilsugæslustöðva, en þær gegna mjög mikilvægu hlutverki í öllum byggðarlögum. Þær þurfa að vera vel í stakk búnar til að mæta þörfum íbúa svæðisins á hverjum tíma, auk þess að sinna stórauknum fjölda ferðafólks og sumarhúsafólks sem sækir Vesturland heim og þarf á heilbrigðis- og slysaþjónustu að halda. Nauðsynlegt er að skapa heilsugæslustöðvunum þá umgjörð að hægt sé að tryggja stöðugleika og samfellu í viðveru lækna og annars menntaðs heilbrigðisstarfsfólks alla daga á heilsugæslustöðvum umdæmisins.“

Virðulegur forseti. Fjárlög hvers árs ráða miklu um hvernig okkur reiðir af á næsta ári. Það skiptir miklu máli að vel sé að verki staðið. Hins vegar er ekki hægt að sjá að gera eigi þær breytingar sem munu einhverju skipta um velferð landsmanna. Einhverra hluta vegna upplifir maður þessi fjárlög sem einhvers konar bútasaum, framreikning á ýmsu sem mun litlu breyta fyrir stöðu almennings í landinu. Hallarekstur verður áfram viðlagið og gerir fjármálaráðherra ráð fyrir 46 milljarða halla á næsta ári, þ.e. ef hann nær að selja Íslandsbanka, sem er alls ekki gefið að hann hafi stuðning fyrir í ríkisstjórninni. Við eigum eftir að sjá það gerast. Ef það gerist ekki verður hallinn tæplega 100 milljarðar kr.

Virðulegur forseti. Það er að mínu mati algjörlega nauðsynlegt að taka upp ný vinnubrögð í rekstri ríkissjóðs. Við getum ekki og megum ekki reka ríkissjóð endalaust með halla eins og við höfum verið að gera allt frá árinu 2019. Því er nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir sem duga til að rétta þennan hallarekstur af.

Virðulegur forseti. Flugmóðurskip á sjálfstýringu mun að endingu stranda.