fjáraukalög 2023.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2023, í 2. umræðu. Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að kynna frumvarpið. Eins komu fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis auk dómsmálaráðuneytisins á fund nefndarinnar til að kynna breytingar á þeirra málefnasviðum og svara spurningum nefndarmanna. Frumvarpið byggist á 26. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, en þar kemur fram að ráðherra er heimilt, ef þess gerist, þörf, að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með öðrum úrræðum sem tilgreind eru í lögum.
Alls er lagt til að heildargjaldaheimildir hækki um 83,5 milljarða, samanber töflu á bls. 42 í greinargerð frumvarpsins. Þar vega langþyngst 44 milljarðar kr. vegna endurmetinnar stöðu lífeyrisskuldbindinga. Vísitala lífeyrisskuldbindinga hefur hækkað umfram forsendur fjárlaga, m.a. í tengslum við kjarasamninga. Heildarlífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs nema meira en 1.100 milljörðum kr. og þannig geta hlutfallslega litlar breytingar á vísitölu leitt til hárrar gjaldfærslu. Þess má þó geta í þessu samhengi að mjög misjafnt er hvort aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við taki inn í sína reikninga lífeyrisskuldbindingar og ber að hafa það í huga í öllum samanburði. Næstmest vega 26,4 milljarðar vegna vaxtagjalda sem einkum skýrist af verðbótum verðtryggðra lána. Í forsendum fjárlaga er gert ráð fyrir 5,6% verðbólgu á árinu en nú er spáð að hún verði um 8,7%. Hvert prósentustig aukinnar verðbólgu leiðir til gjaldfærslu 6–6,5 milljarða í auknar verðbætur. Önnur tilefni vega mun minna en þau koma fram í töflu í frumvarpinu og nema alls tæpum 11 milljörðum. Þegar þessum 11 milljörðum er bætt við tillögurnar um vaxtagjöld og lífeyrisskuldbindingar er samtalan orðin um 83,1 milljarður kr., en allar aðrar tillögur nema samtals aðeins 2,1 milljarði.
Í 24. gr. laga um opinber fjármál er tiltekið að gera skuli ráð fyrir óskiptum almennum varasjóði til að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg, óhjákvæmileg og ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti. Varasjóður skal nema að lágmarki 1% af fjárheimildum fjárlaga og honum er ætlað að mæta frávikum frá launa-, gengis- og verðlagsforsendum fjárlaga. Tilgangurinn er að draga eins og kostur er úr notkun fjáraukalaga þess. Þetta eru sömu skilyrði og eiga við um þau tilefni sem falla undir 26. gr. laga um frumvarp til fjáraukalaga.
Í fjárlögum ársins nam heimild almenna varasjóðsins samtals um 34,6 milljörðum kr. Áður en kom til vinnslu frumvarpsins var búið að ráðstafa 19,5 milljörðum, einkum vegna launahækkana. Við undirbúning frumvarpsins var ákveðið að ráðstafa 11,4 milljörðum til viðbótar. Munar þar mestu um 6,6 milljarða vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd og næst eru 1,5 milljarðar vegna kostnaðar við leiðtogafund Evrópuráðsins og 1,4 milljarðar vegna dómskrafna. Eftir standa um 3,8 milljarðar sem eru óráðstafaðir í almennum varasjóði fjárlaga og ekki gerð tillaga um nýtingu þess fjár en líklegt er að hluti þess nýtist vegna rekstrarkostnaður viðbragðsaðila á Suðurnesjum í kjölfarið jarðhræringa. Það er mikilvægt að hafa í huga að þó að aðstæður á Reykjanesi séu nú betri en óttast var á tímabili er ljóst að atburðurinn er enn í gangi og ekki ljóst hver endaútkoman verður. Því er mikilvægt að varasjóður geti mætt þeim aukalegu ófyrirséðu útgjöldum sem kunna að koma upp á síðustu dögum ársins 2023. Auk varasjóðs er gert ráð fyrir um 5 milljarða kr. sérstökum stuðningi við Grindavík eins og komið verður betur inn á hér á eftir.
Í greinargerð með frumvarpinu er birt áætlun um afkomu líðandi árs. Hraður viðsnúningur er að verða í afkomunni til hins betra á síðastliðnu ári og þessu ári eftir mikinn halla bæði árið 2020 og 2021 sem leiddi af heimsfaraldri kórónuveiru. Þetta sést best í betri frumjöfnuði. Í fjárlögum ársins var áætlað að halli á frumjöfnuði yrði um 50 milljarðar kr. eða um 1,3% af vergri landsframleiðslu, en í greinargerðinni kemur fram að frumjöfnuður sé nú áætlaður jákvæður um 41,5 milljarðar sem er 92 milljarða kr. viðsnúningur frá fjárlögum. Á móti vegur reyndar að vaxtajöfnuður er lakari um 18 milljarða kr. vegna aukinnar verðbólgu. Heildarafkoman er áætluð neikvæð um 45 milljarða kr. í greinargerðinni.
Meiri hlutinn hefur endurmetið afkomuspána í ljósi breytingartillagnanna sem lagðar eru til, auk þess sem arðgreiðslur verða lægri en áætlað var. Er nú áætlað að heildarafkoman verði neikvæð um sem nemur 54,7 milljörðum kr. eða 9,4 milljörðum lakari heldur en fram kemur í greinargerðinni. Heildarniðurstaðan er engu að síður 64,9 milljarða kr. betri afkoma heldur en áætlað var í fjárlögum ársins og því ber að fagna og staðfestir þróttinn í efnahagslífinu.
Mikill munur er á þeim gjaldaheimildum sem lagðar eru til í frumvarpinu og áætlaðri útkomu ársins. Það skýrist af því að fjárlög og fjáraukalög eru sett fram með tveimur mismunandi reikningsskilastöðlum. Annars vegar er óskað eftir 83,5 milljörðum til hækkunar heimilda í frumvarpinu en endurmat á afkomu ársins miðar við gjaldahækkanir upp á 42,2 milljarða. Það munar um 41,3 milljarði og skýrist það nær alfarið af mismunandi bókhaldsmeðferð lífeyrisskuldbindinga. Endurmat á afkomuhorfum ársins er sambærilegt við 1. gr. fjárlaga þar sem hækkun eldri lífeyrisskuldbindinga er ekki gjaldfærð heldur færð um endurmatsreikning. Reikningsskilastaðall málefnasviða miðast hins vegar við gjaldfærslu þeirra og vegna þess er óskað eftir 43,9 milljarða kr. heimild vegna lífeyrisskuldbindinga.
Meiri hlutinn hefur farið yfir tillögur um hækkun gjalda og ráðstöfun varasjóðs og tillögur um millifærslur milli málefnasviða og málaflokka og nefnir nokkur atriði í tengslum við þá vinnu í sínu nefndaráliti. Allmargar tillögur fela í sér millifærslur milli málefnasviða og málaflokka. Þetta verklag getur orkað tvímælis þegar um eðlisólík verkefni er að ræða.
Við undirbúning frumvarpsins var ekki búið að lýsa yfir óvissustigi vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Strax og þær komu fram lýsti ráðherra því yfir að ríkissjóður yrði nýttur til þess að fjármagna óvænt útgjöld vegna jarðhræringa. Meiri hlutinn tekur heils hugar undir þær yfirlýsingar og nú liggur fyrir kostnaðarmat frumvarpa sem Alþingi hefur nú þegar samþykkt í tengslum við þrjú verkefni tengdum jarðhræringum.
Fyrsta tillagan er um 2.700 millj. kr. hækkun á málaflokki 17.40 Varnir vegna náttúruvár, til byggingar varnargarðs við orkuverið í Svartsengi í þágu almannavarna. Markmiðið er að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir verði fyrir tjóni af völdum eldsumbrota á Reykjanesskaga.
Önnur tillaga er um 2 milljarða kr. hækkun á málaflokki 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi, vegna tímabundins stuðnings til greiðslu launa starfsfólks á almennum vinnumarkaði sem getur ekki gegnt störfum sínum þar sem starfsstöð þess er í Grindavík. Í áhrifamati frumvarpsins um tímabundinn stuðning til greiðslu launa fólks sem starfar í Grindavík er áætlað að stuðningurinn geti náð til 1.500 eða 2.000 einstaklinga og kostnaðurinn gæti verið á bilinu 960–1.400 millj. kr. á mánuði í aukaútgjöld ríkissjóðs. Gildissvið laganna er frá 11. nóvember 2023 til febrúarloka 2024 og því gætu um 1,6–2,4 milljarðar fallið á þetta ár.
Þriðja tillagan er um 375 millj. kr. hækkun á málaflokki 31.10 Húsnæðismál. Hér er um að ræða tímabundið stuðningsúrræði til þriggja mánaða til að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur vegna jarðhræringa. Í áhrifamati frumvarpsins um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ kemur fram að kostnaður er áætlaður um 220–245 millj. kr. á mánuði. Samtals er óskað eftir rúmum 5 milljarða kr. gjaldaheimildum af þessu tilefni. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um viðbótarkostnað viðbragðsaðila. Bent er á að enn er til staðar um 3,8 milljarða kr. afgangur af almenna varasjóði fjárlaga og hugsanlega þarf að ganga á hann áður en árinu lýkur vegna viðbótarkostnaðar vegna jarðhræringanna, eins og ég kom inn á fyrr í minni ræðu.
Einnig er gert ráð fyrir stuðningi við Grindavík í fjárlögum ársins 2024 en óvissa um stærðargráðu þess verkefnis gerir það að verkum að erfitt er að áætla fjármagn en ljóst að það getur orðið umtalsvert á næsta ári.
Einnig er gerð tillaga um hækkun á málaflokki 12.10 Stjórnun landbúnaðarmála, vegna tímabundins aukins stuðnings við bændur. Tillagan byggist á niðurstöður starfshóps ráðuneytisstjóra sem skipaður var til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu bænda en þó þannig að heildarfjárhæðin er hækkuð um 500 millj. kr. frá tillögum starfshóps sem miðuðust við 1.600 millj. kr. heildarstuðning, fer í 2,1 milljarð.
Samkvæmt greiningum hópsins er vandinn mestur hjá nýliðum í landbúnaði og þeim sem staðið hafa í miklum fjárfestingum í greininni síðustu ár. Miðað er við að stuðningurinn einskorðist við þau bú sem uppfylla skilyrði búnaðar- og búvörulaga fyrir stuðningsgreiðslum í desember 2023. Fjárhæðin sundurliðast þannig að 600 millj. kr. flokkast sem nýliðunarstuðningur til að styrkja sérstaklega undirstöður rekstrar yngri bænda, enda hafa þeir staðið í hvað stærstum fjárfestingum. Þá fara 450 millj. kr. í fjárfestingarstuðning sem aftur skiptist í 386 millj. kr. vegna nautgriparæktar og 64 millj. kr. vegna sauðfjárræktar. Þá er gert ráð fyrir 450 millj. kr. viðbót í býlisstuðning samnings um starfsskilyrði í sauðfjárrækt. Loks er lagt til að 100 millj. kr. verði bætt við gripagreiðslur holdakúa í samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar.
Til að koma enn betur til móts við erfiða stöðu í mjólkurframleiðslu hefur verið bætt við greiðslur vegna innveginnar mjólkur um 500 millj. kr. Með þessu er komið að nokkru til móts við þann halla sem myndast hefur á árinu 2023. Því er lagt til að horft verði til mjólkurframleiðslu fyrstu ellefu mánaða yfirstandandi árs við ákvörðun skiptingar þessara fjármuna en þó þannig að aðeins þeir sem skiluðu innveginni mjólk í nóvember 2023 eigi rétt á greiðslum úr þeim potti.
Í minnisblaði matvælaráðuneytisins um aukninguna til bænda frá fjárlaganefnd kemur fram að áætlað er að 497 bú muni fá styrk vegna þessara breytinga. Þetta eru þeir bændur sem hafa lagt inn mjólk á tímabilinu janúar til nóvember 2023. Í sama minnisblaði kemur fram að miðgildi greiðslna yrði um 900.000 kr. á bú. Í tillögum meiri hluta fjárlaganefndar er nefnt að aðeins þeir sem lögðu inn mjólk í nóvember eigi rétt á greiðslu en er það gert til að tryggja að þeir sem hafa selt sig út úr greininni á árinu og voru ekki starfandi í nóvember 2023 fái ekki útgreiðslu heldur einungis þeir sem eru í rekstri nú. Tilgangurinn er að létta undir með þeim sem eru nú þegar í rekstri og hvatning til þeirra til áframhaldandi reksturs.
Hér er líka gerð tillaga um 360 millj. kr. hækkun í málaflokki 09.20 Landhelgi. Tillögunni er ætlað að styrkja rekstur Landhelgisgæslunnar með því að koma í veg fyrir að uppsafnaður halli verði á rekstri stofnunarinnar í árslok 2023. Samhliða tillögunni leggur meiri hlutinn til að stefnumótun, árangursmælingar og fjárhagsgrunnur stofnunarinnar verði tekinn til endurskoðunar í tengslum við undirbúning næstu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar. Mikilvægi Landhelgisgæslunnar er ótvírætt fyrir land og þjóð. Það er lykilatriði að rekstrargrunnur hennar sé tryggð til framtíðar og þann grun þarf að skoða í fjármálaáætlun. Með þessari breytingu er uppsafnaður halli Gæslunnar tekinn af og mun því Landhelgisgæslan byrja á núlli á næsta ári þar sem aðhaldskrafa Gæslunnar sem og sérstök aðhaldskrafa hafa verið teknar af í fjárlögum næsta árs og hefur stofnunin því um 240 millj. kr. meira fjármagn til umráða í upphafi nýs árs en gert var ráð fyrir. Alls hefur halli upp á um 600 millj. kr. verið tekinn af sem og bætt við þessum 240 millj. kr. inn í rekstur stofnunarinnar og eru þetta samtals um 840 millj. kr. sem koma til Landhelgisgæslunnar í fjárauka og fjárlögum.
Loks eru gerðar tvær tillögur þar sem útgjöld eru hækkuð til samræmis við tekjuáætlun fjárlaga. Annars vegar er um að ræða 678 millj. kr. hækkun á málaflokki 17.30 Meðhöndlun úrgangs vegna leiðréttingar á áætlunum vegna Endurvinnslusjóðs og Úrvinnslusjóðs. Hins vegar er gerð leiðrétting á málaflokki 23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta þar sem verið er að leiðrétta tillögu sem er í frumvarpinu og tengist slitum á félaginu Fjárföng ehf. sem er alfarið í eigu ríkissjóðs og er um að ræða 74,7 millj. kr. lækkun. Þar er verið að falla frá aukinni fjárfestingarheimild hjá Landspítalanum vegna kaupa á bifreiðum. Þess í stað mun spítalinn nýta fyrirliggjandi heimildir til kaupanna.
Aðrar breytingartillögur skýrast ýmist af millifærslum eða breyttri hagrænni skiptingu.
Að öllu samanlögðu gerir meiri hlutinn tillögu um 8.143 millj. kr. hækkun gjalda.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
Ég ætla að endingu að nota tækifærið og þakka að sjálfsögðu nefndarmönnum í atvinnuveganefnd — nei, í fjárlaganefnd kærlega fyrir samstarfið og að sjálfsögðu eiga nefndarmenn í atvinnuveganefnd allt hið besta skilið líka. Ég þakka fyrir gott samstarf í nefndinni og góðar umræður um þetta nefndarálit og ég hlakka til að eiga orðastað við þingmenn hér á eftir og hlusta á umræður.