fjáraukalög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir framsöguna á nefndaráliti meiri hlutans. Mig langar að spyrja varðandi fjáraukalögin. Ég lít þannig á fjáraukalög að núna sé þetta vegna óhjákvæmilegra, ófyrirséðra og tímabundinna framlaga, eins og segir í ákvæðinu í 26. gr. um fjáraukalögin, frumvarp til fjáraukalaga, og þetta er mjög svipaðs eðlis og varasjóðurinn. Ég er þeirrar skoðunar að það megi meta gæði fjárlaga þessa árs út frá því hvernig fjáraukalögin eru nema það komi eitthvað mjög óvænt upp á. Það hefur vissulega komið eitthvað mjög óvænt upp á þessu ári sem eru umbrotin, náttúruhamfarirnar, jarðskjálftarnir á Reykjanesskaga og ég ætla bara að byrja á að spyrja varðandi það sérstaklega.
Nú kemur fram í nefndarálitinu að það eru í almenna varasjóðnum 3,8 milljarðar og við erum hérna að veita í fjáraukalögum rúma 5 milljarða til varnar náttúruvánni á Reykjanesi, til vinnumála og húsnæðismála líka. Eins og ég skil og les lög um opinber fjármál þá hefði átt að taka fyrst úr almenna varasjóðnum. Er búist við því að það muni eitthvað gerast frá 12. desember til ársloka sem kalli á það að við séum með 3,8 milljarða í almenna varasjóðnum? Af hverju er hann ekki tæmdur þannig að það komi minna inn í fjáraukann? Ég hef alltaf haldið að við ættum að nota útgjaldasvigrúmið og svo almenna varasjóðinn og fara svo í frumvarp til fjáraukalaga til að mæta óvæntum útgjöldum, bara svo ég skilji það rétt.
Ég vil líka taka undir það sem kemur fram hjá hv. formanni fjárlaganefndar og stendur í meirihlutaálitinu, að bæta megi verulega áætlanagerð fjárlaga. Það kemur líka fram að það þurfi að bæta áætlanagerð fasteignaverkefna í framtíðinni. Ég get ekki annað séð en að áætlanagerð fjárlaga þurfi að bæta þegar ég horfi á frumvarpið að hluta til hér. (Forseti hringir.)
Þriðja spurningin lýtur að því hvort hann gæti fjallað aðeins nánar um það hvernig — (Forseti hringir.) ég veit að hann mun sennilega fjalla um þetta á nefndarfundi, varðandi niðurbrotið (Forseti hringir.) til sauðfjárbænda. Munu allir sauðfjárbændur fá bætur eða er það einungis hluti (Forseti hringir.) og hvaða hluti sauðfjárbænda er það þá sem fær bætur?