154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[17:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Í upphafi ætla ég að lýsa því yfir að það er ómögulegt að svara þessum þremur spurningum á tveim mínútum (Gripið fram í.) en ég skal reyna eins og ég get og ég ætla byrja á þessum fyrstu tveimur alla vega. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um það að auðvitað er eðlilegt að nota fjáraukalögin til að bregðast við því sem er óvænt og ófyrirséð á árinu. Spurningin var hvort við værum að fara að horfa á eitthvað á árinu 2023 sem væri ófyrirséð. Nú er ég einn af þeim sem horfir töluvert á fréttir og hef fylgst með atburðum á m.a. Reykjanesskaga og þeim væringum sem þar eru og þar koma helstu jarðvísindamenn Íslands fram og geta ekki sagt fyrir um hvað muni gerast þar fyrir áramót. Þó að ástandið sé klárlega orðið betra en kannski verstu sviðsmyndir gerðu ráð fyrir á sínum tíma er engin leið að átta sig á því hvað þarna mun gerast til áramóta og ég get ekki sett mig í þá spámannsstöðu að vita eitthvað frekar en okkar frábæru jarðvísindamenn. Þetta er því haft þar inni til að bregðast við því óvissuástandi sem er uppi á Reykjanesinu og þar af leiðandi finnst mér eðlilegt að við setjum eitthvað inn í varasjóðinn og tæmum hann ekki alveg þannig að við þurfum ekki að fara í eitthvert fifferí ef við lendum í einhverjum stórkostlegum áföllum, því að varasjóðurinn mun að sjálfsögðu bara detta út um áramót verði hann ekki notaður.

Varðandi áætlanagerðina er það þannig að ég er sammála hv. þingmanni um að við getum alltaf gert betur í áætlanagerð og eigum að gera betur. Ég er hins vegar (Forseti hringir.) á þeirri skoðun að við höfum verið að gera vel og að við höfum verið að bæta okkur verulega, en áætlun er að sjálfsögðu alltaf áætlun.