154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[18:19]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp vegna þess að ég las nefndarálit hv. þingmanns þar sem hann fjallar m.a. stuttlega um að þetta frumvarp beri þess merki að það vanti upp á aga í stjórn opinberra fjármála og hann rökstyður það með því að það sé verið að auka fjárheimildir töluvert mikið og að sú aukning sé ekki öll vegna óvæntra eða ófyrirséðra útgjalda. Hann nefnir vaxtakostnað ríkisins sömuleiðis, hvað hann er að bólgna upp, sem hefur auðvitað áhrif og afleiðingar á getu okkar til að fjárfesta í þjónustu, fjárfesta í innviðum, heilbrigðisþjónustu, löggæslu, samgöngum, velferð. Auðvitað bítur það okkur ef þessi vaxtakostnaður er staðan til lengri tíma. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann aðeins út í þessa umfjöllun og þessi orð hans um skort á aga í opinberum fjármálum og hvaða augum hann lítur stöðuna hvað þetta varðar.