154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[18:21]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er á því að dæmi um að það sé ekki nægjanlegur agi í ríkisfjármálum sé að við erum ekki að fylgja nægjanlega vel lögum um opinber fjármál. Við erum að setja inn í frumvarp til fjáraukalaga beiðni um fjárheimild þar sem hefði verið hægt að nota almenna varasjóðinn. Við erum með almennan varasjóð upp á 3,8 milljarða og við áttum að sjálfsögðu að nota hann til að greiða fyrir innviðina á Reykjanesi og það hefði ekki þurft að fara í fjáraukann. Það segir skýrum stöfum í lögum um opinber fjármál um frumvarp til fjáraukalaga að það eigi að vera búið að tæma önnur úrræði áður en farið er í fjáraukalög. Það var klárlega ekkert gert og það kemur fram í frumvarpinu og það er enginn rökstuðningur fyrir því heldur að þetta séu ófyrirséð, tímabundin og óhjákvæmileg útgjöld. Það vantar þann rökstuðning. Þetta virðast nánast vera venjuleg rekstrargjöld. Ég get tekið dæmi hérna um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 2 milljarða kr. hækkun lögbundinna framlaga. Það er t.d. lokauppgjör byggingar húss íslenskunnar, Eddu, tæplega milljarður. Þetta er raunverulega viðurkennt í áliti meiri hlutans þar sem segir, með leyfi forseta, „að bæta megi verulega alla áætlanagerð fjárlaga auk þess sem heilbrigðisráðuneytinu beri að sjá til þess að betra samræmi sé á milli bókhalds og fjárheimilda hjá heilbrigðisstofnunum“. Þar segir einnig um umframgjöld vegna lokauppgjörs byggingar Eddu, með leyfi forseta: „Meiri hlutinn telur brýnt að fjármála- og efnahagsráðuneytið yfirfari skilamat framkvæmdarinnar í því skyni að bæta áætlanagerð fasteignaverkefna í framtíðinni.“ Það er þessi agi sem þarf að bæta, þessi efnislegi agi í áætlanagerðinni en við erum líka ekki að fara nægilega vel eftir lögum, þeim reglum sem við höfum sett okkur hér á Alþingi sem koma fram í lögum um opinber fjármál (Forseti hringir.) sem varða frumvarp til fjáraukalaga. Það á að nota útgjaldasvigrúmið og almenna varasjóðinn og síðan fara í frumvarp til fjáraukalaga.