fjáraukalög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það er rétt, þetta var mjög góð ferð til Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París, OECD. Við þurfum auðvitað að taka upp bestu framkvæmd hvað varðar fjárlög og þá er það líka þetta atriði að setja þak og segja svo hvernig við ætlum að skipta kökunni, hvernig við ætlum að skipta henni þegar við erum búin að ákveða þakið. Ég er á því að það sé tvennt sem sé forgangsatriði þegar kemur að ríkisfjármálunum, það er að taka niður halla ríkissjóðs og minnka skuldir ríkissjóðs.
Eins og kom fram í ræðu minni eru vaxtagjöld á þessu ári 106 milljarðar kr. og á næsta ári er útlit fyrir að þau aukist og verði 117 milljarðar kr. Þetta er tíundi hluti allra tekna ríkissjóðs sem fer í vaxtagreiðslur, 1 kr. af hverjum 10 fer í vaxtagreiðslur. Þetta er allt of, allt of mikið. Þetta er algjört forgangsatriði. Við, svona lítið samfélag og lítið ríki, verðum að hafa sem minnstar mögulegar skuldir. Ég get tekið dæmi um Eistland, þeir reyna að vera algerlega skuldlausir. Það er bara mjög mikilvægt. Við erum ríkt samfélag og við verðum að lækka skuldir langt niður fyrir skuldaregluna, ég vil helst fá þær niður fyrir 20%, skuldareglan er núna 30%. Við verðum að fá þær niður því að þá getum við loksins farið að byggja upp velferðarkerfin okkar og farið að hafa tilfærslukerfin okkar með réttum hætti og sjá til þess að þeir verst settu í samfélaginu fái réttlátan hlut af kökunni. Þannig getum við skapað sátt í samfélaginu, þetta er svona forvinnan að því. Við eigum léttilega að geta gert það og það verður einungis gert með aga í ríkisfjármálunum, eins og hv. þingmaður sagði. Förum að settum reglum og verum hörð við okkur og sjáum til þess líka að greiða niður þessar skuldir. Við verðum að gera það vegna þess að á næsta ári getur þetta algerlega farið úr böndunum. Ef við fáum annað Covid, það verður aflabrestur, ferðamenn hætta að koma þá erum við kannski of skuldsett til að geta tekið á því með sómasamlegum hætti.