154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[18:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svörin. Við erum búnir að ræða svolítið varasjóðinn og við erum kannski ekki alveg samstiga í þeirri umfjöllun en ég held að við skiljum hvor annan ágætlega þó að við séum kannski ekki alveg 100% sammála. Það er hins vegar alveg ljóst að 3,8 milljarðar í varasjóðnum hefðu ekki dekkað þetta frumvarp til fjáraukalaga, þannig að því sé til haga haldið.

Mig langar að fá smá samtal við hv. þingmann — sem hefur rætt mikið, og í góðri trú og með góðum hug, skuldastöðu íslenska ríkisins sem hann hefur lýst miklum áhyggjum af, bæði í þessari umræðu og eins í þessu ágæta nefndaráliti sem hann leggur hér til — um mikilvægi þess að borga niður skuldir. Ég held að við getum öll verið sammála því að það sé mikilvægt að borga niður skuldir. En það er líka mikilvægt að átta sig á því hvernig þessar skuldir eru til komnar. Ég fór yfir það áðan í andsvari varðandi þá fjármuni sem Alþingi samþykkti í Covid og var alveg ljóst að við þyrftum að borga til baka.

Mig langar þá að spyrja hv. þingmann hvaða hugmyndir hann er með um hvernig — því að þú notar ekki sama peninginn tvisvar. Ef við eigum að fara í það að borga niður skuldir töluvert hratt, eins og mér skilst að hv. þingmaður sé að tala um, hvernig sér hann fyrir sér að hægt væri að gera það á næsta ári, þá varðandi þjónustustig sem við ætlum að veita í þessum fjárlögum? Hvaða leiðir sér hv. þingmaður fyrir sér til að gera það? Ég veit að það munu koma einhverjir (Forseti hringir.) tekjupóstar þarna á móti, en hvaða leið myndi þingmaðurinn fara? Ég hef áhuga á að heyra það.