154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[19:07]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Hann fór í upphafi ræðu sinnar inn á verðbólgu í upphafi árs og í lok árs og gaf til kynna að núverandi fjárlög, sem við erum að vinna eftir núna, hafi raunverulega bætt í verðbólguna. Við sjáum að það er 83,5 milljarða aukning í því frumvarpi sem hér er til umræðu eða 6,3% af heildarútgjöldum fjárlaga í ár. Ég get sjálfur ekki séð það öðruvísi en svo að verið sé að bæta í verðbólguna með því að, ég segi ekki að hella olíu á bálið, en fjárlög núverandi árs taka ekki á verðbólgunni og við höfum gagnrýnt það harðlega. Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því. En að sjálfsögðu er í fjáraukalögum hluti til bænda, sem er mikilvægt, og líka til Grindavíkur, en mér finnst að það hefði mátt taka aðra liði inn í fjárlög næsta árs.

Það var áhugavert þegar hv. þingmaður fór inn á 2. mgr. 26. gr. laga um opinber fjármál. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að með þessu frumvarpi til fjáraukalaga sé verið að vinna algjörlega eftir 26. gr., eins og hún er orðuð, að það eigi t.d. fyrst að athuga hvort ekki hafi verið unnt að bregðast við útgjöldum með þeim úrræðum sem tilgreind eru í lögunum, og líka 2. mgr., sem hann talaði sérstaklega um, varðandi mat á áhrifum á heildarafkomu ríkissjóðs, skuldbindingar hans og aðrar forsendur fjármálaáætlunar. Persónulega finnst mér það ekki gert nægjanlega. Það væri gott að fá aðeins að heyra álit hv. þingmanns á þessu, út frá aganum í fjárlagagerðinni, og líka hvort það sé ekki mikilvægt að bæta fjárlagagerðina, eins og kemur fram hjá meiri hlutanum.

Mig langar að lokum að benda á — ég prentaði út búvörusamninginn fyrir sauðfjárbændur, samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 2016 (Forseti hringir.) en þar er ákvæði um verðlagninguna og þar eru verðlagsuppfærslur. (Forseti hringir.) Þar er miðað við verðlagsuppfærslur fjárlaga eða meðalvísitölu neysluverðs.