fjáraukalög 2023.
Forseti. Að seinna atriðinu: Já, það er miðað við verðlagshlutann þarna og uppfærsluna eins og hún er í fjárlögum og þá eru það 5,6%, ekki 8,7%. Það er þessi verðlagsvandi sem við glímum alltaf við, að ef verðbólgan er hærri, sem hún er oftar en ekki — frá 1997 hefur það gerst sex sinnum eða eitthvað svoleiðis að verðbólgan var lægri en var spáð og þá munaði ekkert það rosalega miklu. Þetta hef ég alla vega úr gögnunum um það hvernig þróun lífeyris almannatrygginga hefur verið síðan 1997. Ég giska á að það eigi við um þetta líka.
Varðandi fyrri hlutann: Nei, eins og ég sagði er tvímælalaust ekki verið að fara eftir lögum um opinber fjármál. Ég held að ástæðan fyrir því sé ákveðin spéhræðsla, fjármálaleg spéhræðsla, ekki bókstafleg, á þann hátt að það er einfaldlega verið að fegra niðurstöðu fjárlaga. Eins og ég kom inn á þá heldur það kannski aftur af útgjaldavexti hjá ríkisstjórninni ef tekjur eru vanáætlaðar. Ef hún heldur að hún eigi meiri pening til að eyða þá mun hún eyða honum en ef það er vanáætlað hefur ríkisstjórnin tækifæri til að eyða peningnum seinna á árinu, þegar það kemur í ljós að tekjurnar urðu í alvörunni meiri, og getur þá hellt heilum helling af pening í fjáraukalögin. En þannig á það auðvitað ekki að vera. Þannig virkar þetta ekki. Við eigum einmitt að láta einstaka fjármálaliði fara í mínus og vera í mínus ef þeir þróast þannig. (Forseti hringir.) Það á að gefa okkur vísbendingu um að það sé einhver vanfjármögnun í gangi eða ofeyðsla í gangi. (Forseti hringir.) Við fáum ekki þær upplýsingar ef það er sífellt verið að borga upp gamlar skuldir.