154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[19:51]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2023 og svo það sé sagt strax í byrjun þá styð ég nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar. Við höfum fengið ágæta umræðu hér í dag og formaður hv. fjárlaganefndar, Stefán Vagn Stefánsson, hefur flutt meirihlutaálit nefndarinnar. Mig langar rétt að hlaupa hér í gegnum nokkur atriði í tengslum við málið. Það er kannski helst tvennt, þ.e. staða bænda og Landhelgisgæslan.

Í 2. umræðu um fjárauka sem við ræðum hér er gerð tillaga um 2.100 millj. kr. hækkun á málaflokki 12.10, þ.e. Stjórnun landbúnaðarmála, vegna tímabundins aukins stuðnings við bændur. Tillagan byggist á niðurstöðum starfshóps ráðuneytisstjóra sem skipaður var til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu bænda, en þó þannig að heildarfjárhæðin er hækkuð um 500 millj. kr. frá tillögum starfshópsins sem miðuðust við 1.600 millj. kr. heildarstuðning.

Aðeins um svokallaðan starfshóp ráðuneytisstjóra, sem hefur gengið undir því heiti. Þrír ráðuneytisstjórar skipa hópinn, þ.e. ráðuneytisstjórar í matvælaráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og innviðaráðuneytinu og voru skipaðir af ríkisstjórn 20. október sl. Hópnum var falið að fjalla um þær áskoranir sem nú eru uppi í landbúnaðinum og koma með tillögur til að bæta úr þeirri stöðu. Kallað var eftir gögnum frá Hagstofunni, Byggðastofnun, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, ársreikningum frá Creditinfo auk þess sem stuðst var við gögn matvælaráðuneytisins um stuðningsgreiðslur í landbúnaði. Samkvæmt greiningum hópsins er vandinn mestur hjá nýliðum í landbúnaði og þeim sem staðið hafa í miklum fjárfestingum í greininni síðustu ár. Miðað er við að stuðningurinn einskorðist við þau bú sem uppfylla skilyrði búnaðar- og búvörulaga fyrir stuðningsgreiðslum í desember 2023.

Það er ágætlega gert grein fyrir skiptingu vegna tímabundins aukins stuðnings við bændur í nefndaráliti meiri hlutans. Fjárhæðin sundurliðast þannig að 600 millj. kr. flokkast sem nýliðunarstuðningur til að styrkja sérstaklega undirstöðu rekstrar yngri bænda, enda hafa þeir staðið í hvað stærstum fjárfestingum. Þá fara 450 millj. kr. í fjárfestingarstuðning sem aftur skiptist í 386 millj. kr. vegna nautgriparæktar og 64 millj. kr. vegna sauðfjárræktar. Þá er gert ráð fyrir 450 millj. kr. viðbót í býlisstuðning samnings um starfsskilyrði í sauðfjárrækt. Loks er lagt til að 100 millj. kr. verði bætt við gripagreiðslur holdakúa í samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar. Til að koma til móts við erfiða stöðu í mjólkurframleiðslu verði bætt við greiðslur vegna innveginnar mjólkur 500 millj. kr. Með þessu er komið að nokkru til móts við þann halla sem myndast hefur á árinu 2023. Því er lagt til að horft verði til mjólkurframleiðslu fyrstu ellefu mánaða yfirstandandi árs við ákvörðun skiptingar þessara fjármuna en þó þannig að aðeins þeir sem skiluðu innveginni mjólk í nóvember 2023 eigi rétt á greiðslum úr þeim potti.

Frú forseti. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa hér upp úr áliti meiri hluta fjárlaganefndar í 2. umræðu fjárlaga 2024 sem lýsir þeirri erfiðu stöðu sem nú er uppi í landbúnaðinum. Kaflinn í nefndarálitinu fjallar um landbúnaðinn og erfiða stöðu bænda:

Landbúnaðurinn glímir við einstaklega erfitt rekstrarumhverfi, sérstaklega í framhaldi af innrás Rússa í Úkraínu, þar sem stórhækkað verð á ýmsum aðföngum landbúnaðar hefur gjörbreytt öllum rekstrarforsendum. Fordæmalaus hækkun hefur orðið á áburði, orku, kjarnfóðri og ýmsum öðrum aðföngum til búrekstrar sem ekki hefur verið mögulegt að velta út í almennt verðlag. Bændur hafa nánast enga möguleika til að velta slíkum byrðum út í almennt vöruverð. Þá eru verulegar hækkanir á fjármagnskostnaði þar sem landbúnaður hefur m.a. þurft, vegna opinberra aðgerða um bættan aðbúnað búfjár, að standa í miklum fjárfestingum. Stækkun búa, með tilheyrandi fjárfestingum, og mikil skuldsetning í samhengi við veltu er þung í skauti. Skuldahlutfallið er víða mjög hátt, þ.e. skuldir á móti veltu.

Eðli búskapar er að aðskilnaður heimilis og fyrirtækis er ekki sá sami og almennt er í atvinnurekstri. Heimili bændafjölskyldna eru samofin búrekstri auk þess sem velferð búfjár er stöðugt í forgangi. Í mjólkurframleiðslu og fleiri búgreinum er ekki val um að fresta fjárfestingum vegna settra laga og reglna stjórnvalda. Það er hér undirstrikað að þótt flestir finni fyrir stórhækkun á fjármagnskostnaði verður að hafa þessa sérstöðu landbúnaðar í huga.

Það sem hv. fjárlaganefnd bætir við í umfjöllun nefndarinnar og áliti er að bætt er við 500 millj. kr. sem fara í mjólkurframleiðsluna og þá verður eiginlega hafa í huga að hér er um bráðaaðgerðir að ræða, hér er við bráðavanda að stríða. Það er það sem við erum að fást við hér. Í fjárauka fyrir 2023 erum við að fást við þennan bráðavanda. En það er nauðsynlegt að horfa til framtíðar og þar þarf að bæta ýmislegt sem er mikilvægt að fara í til að bæta rekstrarstöðu bænda og raunverulega ýmsa þætti sem þarf til að bæta starfsskilyrði.

Það er ágætt að minnast á það að í þessum tillögum frá starfshópi ráðuneytisstjóranna þá koma þeir með nokkra punkta í fínni greinargerð sem fylgir með og benda á að það eru 2.900 bændur sem hafa landbúnað að aðalstarfi á Íslandi og það sé mikilvægt að koma upp einhvers konar afleysingaþjónustu bænda. Við sem þekkjum til bænda á Íslandi vitum að þar er engin vinnutímastytting í gangi. Bændur vinna mikið og vinna nánast alla daga ársins. Það er lítið um frí og það er nauðsynlegt að fara að huga að því að reyna að skapa betri forsendur fyrir því að koma á einhvers konar afleysingaþjónustu bænda þegar bændur vinna alla daga ársins og vinnudagurinn getur verið 12 klukkustundir eða meira.

Síðan er nauðsynlegt, eins og ráðuneytisstjórarnir benda á, að fara mögulega í meiri hagræðingar til að styrkja stöðu frumframleiðanda og nýta tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar í landbúnaði. Það hefur náðst gríðarlegur árangur síðustu 20 árin í mjólkurframleiðslunni með ýmsum hagræðingaraðgerðum en við eigum kannski að gera betur í sambandi við kjötið og skoða hvaða möguleikar eru, eins og með afurðastöðvar og slíkt. Ég ætla ekki að fara dýpra í það núna en þessi umræða er stöðugt í gangi og þetta er mikið rætt.

Það sem mér hefur fundist mjög spennandi að skoða í þessu samhengi og hef verið að kynna mér undanfarna mánuði og ég held að það séu gríðarleg tækifæri í því í landbúnaðinum og nautgriparæktinni, kjötframleiðslunni, er kyngreining á nautgripasæði. Ég held að það sé bara eitt af stóru málunum núna eftir erfðamengisúrvalið og þegar er búið að vinna það starf þá sé næsta skref, eins og var bent á í greinargerð ráðuneytisstjóranna, að fara í það verkefni. Það er ekkert allt of dýrt og ég held bara ágætismöguleikar á að fara í þetta. Mér skilst að Norðmenn hafi tekið mjög hressilega á í fjárfestingum í Noregi varðandi þetta, varðandi tækni og búnað og þjálfun starfsfólks, þeir fóru kannski aðeins fram úr sér. Ég held að það séu raunverulega möguleikar núna á að nálgast tæki og tól sem þarf í þessa greiningarvinnu sem tengist nautasæði og jafnvel að sækja þjónustu og þekkingu til að þjálfa upp hér á Íslandi þekkingu og getu til að standa í þessu. Það sem ég heyrt er að þetta gæti verið kostnaður upp á einhverjar 300 milljónir. Ég held að það sé eitthvað sem væri mjög vert að horfa til og fara í sem allra fyrst.

Í sambandi við það að við förum þessa leið, að setja 500 millj. kr. í innvegna mjólk og nota það sem grunninn að þessum greiðslum, þá hefði sá sem hér stendur viljað haga þessu aðeins öðruvísi. En þetta var niðurstaðan. Sá sem hér stendur hefði frekar viljað fara í meiri greiningarvinnu og átta sig á fjárhagslegri stöðu einstakra búa þannig að við hefðum gert þetta aðeins hnitmiðaðar og markvissara með því að styrkja mest þá sem hafa kannski mesta þörf á að fá stuðning, ekki fletja þetta alveg jafn mikið út og gert er hér. En svo að það sé ljóst þá skiptir máli að fá 500 milljónir, hvort sem það er gert í gegnum innvegna mjólk eða greiðslumarkið eða með öðrum hætti og þess vegna er mikilvægt að fá þessar greiðslur. Ég lýsi því fullum stuðningi við aðgerðina þó að ég hefði kannski viljað gera þetta með aðeins öðrum hætti. Nóg um þetta að svo stöddu.

Við 2. umræðu fjárlaga flutti ég hér langa ræðu um landbúnaðinn og vísa frekar í hana varðandi samhengi hlutanna sem við erum fást við hér og síðan svona meira framtíðartengt og sögu þeirra stöðu: Af hverju erum við komnir í akkúrat þessa stöðu sem við erum í núna ef við horfum 20, 30 ár aftur?

Hitt málið sem kemur inn á vinnu nefndarinnar í þessu máli varðar Landhelgisgæsluna. Gerð er tillaga um 360 millj. kr. hækkun til Landhelgisgæslunnar og er tillögunni ætlað að styrkja rekstur Landhelgisgæslunnar með því að stofnunin hefji nýtt ár á núllinu. Hér er verið að bregðast við uppsöfnuðum halla síðustu ára þannig að Landhelgisgæslan hefji nýtt ár, þ.e. 2024, með hallalausum rekstri. Samhliða tillögunni leggur meiri hlutinn til að stefnumótun, árangursmælingar og fjárhagsgrunnur stofnunarinnar verði tekin til endurskoðunar í tengslum við undirbúning næstu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar.

Í fjárlögum fyrir árið 2024 er í meirihlutaáliti fjárlaganefndar við 2. umræðu lagt til að aðhaldskrafa á Landhelgisgæsluna verði dregin til baka og einnig að fjárheimildir í fjárlögum næsta árs aukist um 240 milljónir á ári. Það er gert með því að draga til baka sérstaka aðhaldskröfu og almenna aðhaldskröfu til stofnunarinnar. Það er því raunverulega verið að bæta 600 milljónir inn í reksturinn. En það þarf að gera betur og sá sem hér stendur hefur margoft talað fyrir því.

Með það í huga vil ég geta þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Ásamt þeim sem hér stendur eru 16 aðrir hv. þingmenn á þeirri þingsályktunartillögu. Tillagan gengur út á að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri. Í þeirri tillögu er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu er augljós tenging við sjúkraflugið í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar geta læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 500 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 200–300 millj. kr. Nú þegar eru til staðar flugvirkjar sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn í heilbrigðisstofnunum, slökkviliði og fleiri sem geta nýst starfseminni.

Fjarlægðir eru miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til að sinna sjúkraflutningum á norður- og austurhluta landsins með sjúkraþyrlum er mikilvægt og nauðsynlegt að svæðinu sé staðsett þyrla þar sem erfitt er að koma við sjúkraflugi með flugvél. Það er ekki langt síðan að sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni, sem þýðir að það eru tvær áhafnir á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að efla björgunargetu þyrluflugsveitar Landhelgisgæslunnar.

Varðandi þetta er mikilvægt að það komi fram hér með sterkari hætti að sjöunda áhöfnin, sem stefnt er að að verði ráðin til Landhelgisgæslunnar, er inni í þessari tölu um 500 millj. kr. kostnað á Akureyri, en almennt er reiknað með að hver áhöfn Gæslunnar kosti um 400 milljónir. Það er því ekki mikill aukakostnaður við það að ráða sjöunda áhöfnina, sem er stefnt að. Þá verðum við að huga að því að það væru tvær áhafnir á Akureyri, á Norðurlandi, á einni þyrlu þar og síðan væru tvær þyrlur staðsettar í Reykjavík og fimm áhafnir.

Með því að skapa þessa forsendur þá væru þyrlur bæði í Reykjavík og á Akureyri og mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega. Það er mín von að farið verði í það í tengslum við nýja fjármálaáætlun 2025–2029 sem við förum í á nýju ári, að það finnist leiðir til að koma þessu mikilvæga máli áleiðis um staðsetningu þyrlu á vegum Landhelgisgæslunnar. Það er mikilvægt að þetta mál nái í gegn um staðsetningu á Akureyri.

Það sem kemur til viðbótar við aukið fjármagn sem er varið í fjáraukann eru málefni Grindavíkur. Í fjáraukanum eru þrjú mál upp á á 5,7 milljarða. Það hefur verið farið ágætlega í gegnum þau mál í dag og við höfum verið að fást þau mál í þinginu síðastliðinn mánuð.

Það er líka mikilvægt svona rétt í lokin og ég held að það væri gott að fjárlaganefnd færi í meiri vinnu í tengslum við að óska upplýsinga um lífeyrisskuldbindingar ríkisins. Það kemur fram í þessu meirihlutaáliti sem við erum að fást við hér að það er annars vegar lagt til að heildargjaldaheimildir hækki um 83,5 milljarða. Þar vega langþyngst 44 milljarðar, það er um helmingur af upphæð fjáraukans, vegna endurmetinnar stöðu lífeyrisskuldbindinga og er bent á að vísitala lífeyrisskuldbindinga hafi hækkað umfram forsendur fjárlaga, m.a. í tengslum við kjarasamninga. Heildarlífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs nema meira en 1.100 milljörðum kr. og þannig geta hlutfallslega litlar breytingar á vísitölu leitt til hárra gjaldfærslna. Það er rétt að vekja athygli á þessu í þessu samhengi sem við erum að fást við í tengslum við fjárlögin.

Það gæti líka verið áhugavert fyrir okkur í haust í hv. fjárlaganefnd að skoða lífeyrisskuldbindingar íslenska ríkisins miðað við ríkissjóð annarra þjóðlanda og kannski helst hvernig þessari stöðu er komið fyrir annars staðar í Evrópu og OECD og þá líka hvernig er verið að færa þetta í fjárlögum viðkomandi landa sem snýr að lífeyrisskuldbindingum. Mig grunar að það gæti verið mjög áhugavert að skoða þennan samanburð því að minn grunur er sá að það sé víða miklu verr staðið að þessum málum og ekki með sama gegnsæi og er hér á landi þar sem lífeyrisskuldbindingarnar eru teknir sérstaklega fyrir eins og við gerum með gegnsæjum hætti.

Það er líka rétt í lokin áhugavert að skoða vaxtagjöld. Eins og kemur fram í umræðunni núna varðandi fjárlögin og það sem við erum að fást við hér eru vaxtagjöldin eru 110 milljarðar, en þau skiptast þannig að 59 milljarðar eru greiddir vextir, 34 milljarðar fara í verðbætur og 18,5 milljarðar eru reiknaðir vextir vegna lífeyrisskuldbindinga og ekki greidd heldur reiknuð stærð. Í þessu samhengi er gott að hafa í huga að vaxtatekjur ríkissjóðs eru áætlaðar 36 milljarðar þannig að ef við berum saman greidda vexti, þ.e. 58 milljarða á móti vaxtatekjum, 36 milljörðum, er mismunurinn 22 milljarðar, sem er þá vaxtajöfnuður þegar reiknaðar stærðir eru undanskildar.

Ég held að það verði ekki farið lengra að svo stöddu, frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.