154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í gær var haldinn íbúafundur fyrir Grindvíkinga. Tilgangurinn var að halda íbúum bæjarins eins vel upplýstum og kostur er í því óvissuástandi sem þeir búa enn við. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði í viðtali að fundurinn hefði tekist bærilega og að ýmsar upplýsingar hefðu komið fram á þessum fundi. Marga Grindvíkinga hefur dreymt um að geta haldið jólin heima hjá sér en á fundinum voru tekin af öll tvímæli um að það muni ekki geta gerst. Þetta er fólki skiljanlega þungbært. Þegar okkur þingmönnum Suðurkjördæmis gafst kostur á að fá að heimsækja Grindavík í síðustu viku gerði maður sér grein fyrir þeim ógnarkröftum sem höfðu verið á ferðinni í bland við djúpu kyrrðina sem lá yfir bænum. Teygð og beygð hús, sundurskorin jörð sýndi manni svo svart á hvítu hversu lítils við megum okkar gagnvart náttúruöflunum. Unnið hefur verið að því á mörgum vígstöðvum að tryggja stöðu Grindvíkinga eins og hægt hefur verið. Hér á Alþingi er búið að samþykkja frumvörp til að tryggja tekjur og greiðslur vegna húsnæðiskostnaðar. Þá munu óhagnaðardrifnu leigufélögin hafa unnið hörðum höndum að því að kaupa eignir sem Grindvíkingar geta síðan leigt. Eitt frumvarp vegna þessa er boðað fyrir þinglok. Vissulega getur þessi staða reynst erfið fyrir marga Grindvíkinga. Það eru ekki allir sem hafa náð að koma sér fyrir á stað þar sem þeir geta haldið heimili út af fyrir sig. Vonandi rætist úr því innan tíðar. Óvissan er enn til staðar og ekki vitað hvort eða hvenær þessu verður lokið. Hitt er þó víst að samfélagið í heild mun taka á þessum atburðum með Grindvíkingum. Ég vil óska Grindvíkingum gleðilegra jóla í von um að úr rætist á nýju ári.