154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er skammgóður vermir að pissa í skó sinn, segir íslenska orðtakið, orðtak sem er dálítið einkennandi fyrir íslensk stjórnmál. Skammtímalausnir eiga frekar upp á pallborðið en að þora og leyfa sér að hugsa lengra en út næstu mánuði. En stundum neyðumst við til að gera það eins og þegar við erum föst í þessu verðbólgu- og hávaxtaástandi með íslensku krónuna. Þá þarf auðvitað tímabundinn stuðning til fjölskyldna í landinu.

Við í Viðreisn höfum stundum fengið skammir og skens fyrir að vera of föst í langtímahugsun en nokkur dæmi dagsins, mjög bitur dæmi dagsins, sýna hvað það er dýrkeypt fyrir íslenska þjóð og samkeppnishæfni hennar að stjórnmálafólk er fast í skammtímalausnum og skítareddingum, oftar en ekki til að verja völd og stóla. Við höfum nú í sex ár búið við ríkisstjórn kyrrstöðu, það sjáum við öll. Við sjáum kyrrstöðuna í orkumálum, alvarlegur orkuskortur blasir við, grænu markmiðin okkar verða fjarlægari en áður og umræða um nauðsyn neyðarlaga er lýsandi fyrir ástand sem er algerlega á ábyrgð ríkisstjórnar, rándýr skiptimynt á milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna sem mun koma alvarlega niður á heimilum landsins og framtíðarkynslóðum okkar.

Ég get líka nefnt menntamálin, það risastóra samfélagslega verkefni. Á þriggja ára fresti erum við hissa og dálítið vonsvikin yfir niðurstöðu PISA en svo fellur allt í gleymskunnar dá. Við verðum að setja fókus á menntamálin á hinu pólitíska sviði og hugsa lengra fram í tímann, þora að gera það og gera það saman. Við sjáum síðan gjaldmiðilsmálin okkar, efnahagsmálin. Þar er ekkert nema plástrar í öllum regnbogans litum, sumir orðnir verulega fúnir og gamlir og aðrir nokkuð nýir. Við vitum að með óbreyttu ástandi þá getum við bara boðið upp á skammtímalausnir sem verða á endanum dýrkeyptar fyrir heimili landsins og litlu og meðalstóru fyrirtækin okkar. Við erum með örhagkerfi sem mun aldrei búa við annað en svona skítareddingar og þannig er það bara. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Við þurfum auðvitað starfhæfa ríkisstjórn sem getur hugsað til lengri tíma (Forseti hringir.) því eins og við vitum er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn.