Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Minn besti stuðningsaðili hér í þingsal er kominn í lag. Það hefur verið frekar illa niðurdregið undanfarna daga og svo mikið að það hefur eiginlega verið fast þannig. Sumir hafa haldið því fram að það henti þeim vel að hafa það svona niðurlútt en ég og fleiri erum sko langt því frá sammála því. Það sýna miklar og ítrekaðar tilraunir án árangurs til að lyfta því upp undanfarið. Afleiðingarnar hafa verið þær að þetta hefur einnig gert mig mjög niðurlútan, í orðsins fyllstu merkingu. Það er þannig að ég hef átt í stökustu vandræðum með að lesa ræður mínar því að ég hef ekki notið stuðnings þess og því orðið að halda á þeim sjálfur. Frá árinu 2017 og til dagsins í dag hef ég notið óskoraðs stuðnings þess í 104 klukkustundir, sem eru rúmlega fjórir dagar, við flutning á 2.022 ræðum — nei, afsakið, 2.023 ræðum núna, alveg satt, sem sýnir mikilvægi þess að púltið sé ekki svo niðurdregið að það sé ekki hægt að breyta því. Því fagna ég því innilega að þessi langbesti stuðningsaðili minn hér í þingsal sé kominn í lag og kominn í fulla reisn, mér til stuðnings sem aldrei fyrr. Þá einnig til stuðnings við hækju mína, sem það hefur einnig stutt dyggilega með fáeinum undantekningum sem skrifast frekar á klaufaskap minn.
Ég er sannfærður um að það voru mjög þung og slæm fjárlög sem urðu þess valdandi að það var svo óskaplega niðurdregið að það hreinlega festist þannig í nokkra daga. Ekki var það ræða mín um fjárlög þann 6. desember síðastliðinn sem orsakaði bilun í ræðupúltinu því þá var það þegar nýbilað og ég fór í ræðu mína þá með þeim afleiðingum að ég var meira og minna niðurlútur við flutning hennar.
Ég tel að orsökin fyrir því að púltið festist svona illa niðurdregið sé íþyngjandi og slæm fjárlög ríkisstjórnarinnar, þá sérstaklega að hún vilji ekki samþykkja að 2.000 verst settu eldri borgararnir fái 66.000 kr. jólabónus eins og öryrkjar fá. Ég fæ nú stuðning frá ræðupúlti þingsins, sem betur fer, og ég vildi óska þess að verst setti hópur almannatrygginga fengi einnig 66.000 kr. stuðning núna í fjárlögum 2024 frá ríkisstjórninni eins og öryrkjar.