154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Greta Ósk Óskarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég vil lýsa yfir áhyggjum mínum á stöðu grunnrannsókna hér á landi, sér í lagi stöðu byggingarrannsókna um þessar mundir. Við lokun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem síðar var breytt í Tæknisetur, fór fram stór flétta þar sem verulega var vegið að grunnrannsóknum; myglurannsóknum, umhverfismælingum og eitt það sem olli mér mestum áhyggjum var lokun Rannsóknastofu byggingariðnaðarins. Nú þegar við erum búin að koma auga á það að rakaskemmdir og mygla geta valdið alvarlegum og í sumum tilfellum óafturkræfum heilsuskaða þá erum við farin af stað í það erfiða verkefni að gera við heimili í einkaeigu, opinberar eignir ríkisins og sveitarfélaga á borð við skóla, leikskóla, spítalahúsnæði, félagslegt húsnæði o.s.frv. En það er ekki aðeins frestun á viðhaldi sem olli þessu ástandi heldur líka í sumum tilvikum hvernig byggingar voru byggðar, úr hvaða efnum, hvernig þær voru settar saman og hvernig frágangurinn var. Við eigum Rannsóknastofu byggingariðnaðarins líklega að einhverju leyti að þakka að húsnæði hefur ekki skemmst meira í jarðhræringum sem við höfum verið að upplifa. Við nutum góðs af áralöngum byggingarrannsóknum, m.a. rannsóknum á gæði steypu og burðarþoli, vandaðri byggingarreglugerð og alþjóðlegum byggingastöðlum sem hafa verið lagaðir að íslenskum aðstæðum. Nú er sú hætta yfirvofandi að þessi þekking glatist. Íslensk stjórnvöld ætla að hætta að aðlaga evrópska þolhönnunarstaðla að íslenskum aðstæðum, m.a. verður horfið frá ákvæðum sem eiga að tryggja jarðskjálftaheldni húsa. Því verða engar séríslenskar kröfur til þolhönnunar mannvirkja á Íslandi. Á Íslandi er hið heilaga gral fyrir marga að eignast öruggt heimili. Munu heimili morgundagsins standast jarðskjálfta og vera laus við stórfellda galla? Er ríkisstjórnin að gera nóg til þess að tryggja það?