breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Herra forseti. Þetta frumvarp sem hér liggur til grundvallar um ýmsar breytingar vegna forsenda fjárlaga 2024 er sett fram þar sem við höfum líka verið að ræða fjárlög fyrir 2024. Fjárlagafrumvarp fyrir 2024 er skynsamlegt og það er gott og það tekur á þeim hlutum sem skipta máli til ná hér stjórn á efnahagsmálum, þ.e. að við séum að stuðla að því að verðbólga geti lækkað og við fáum vaxtastig niður. Það er svigrúm hér til þess að hægt sé að gera skynsamlega kjarasamninga. Ef allt þetta helst í hendur þá verðum við á réttri leið. Þetta frumvarp miðar að því að stilla af ýmsar tekjuforsendur. Hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir kom inn á það sem skiptir gríðarlegu máli, að hér eru tillögur sem miða að því að ríki og sveitarfélög hafa náð samkomulagi um gríðarlega mikilvægan málaflokk, málefni fatlaðs fólks. Það er stórt atriði í þessu frumvarpi sem er fagnaðarefni að hafi náðst fram.