154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[15:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er einfaldlega verið að taka þá ákvörðun í fjárlögunum og bandorminum sem við erum að tala um núna að stýrivaxtahækkanirnar falli með fullum þunga á lægstu tekjutíundirnar. Það er í rauninni ekkert flóknara en það. Það er einfaldlega ekki ákveðið að láta grunnkerfin í velferðarkerfinu okkar fylgja verðlagi, hvað þá launaþróun. Það er stóra fréttin í þessu öllu þegar allt kemur til alls. Og þegar er verið að tala um útsvarið til sveitarfélaganna vegna málaflokks fatlaðra þá er það af því að sveitarfélögin eru búin að vera í hallarekstri í þeim málaflokki undanfarin ár. Það er ekki til þess að þau geti eytt meiri pening í þeim málaflokki, það er til þess að þau geti yfirleitt rekið þann málaflokk sem Alþingi setti yfir á sveitarfélögin með allt of lágu kostnaðarmati. Kostnaðarmatið, 6 milljarðar, er ekki einu sinni nóg miðað við þau gögn sem við höfum fengið að sjá, þannig að þessi fjárlög eru svona hálfkveðin vísa að öllu leyti.