breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Herra forseti. Það er með ólíkindum að á sama tíma og fleiri og fleiri heimili eiga erfitt með að ná endum saman þá vilji stjórnarmeirihlutinn láta barnabætur til tekjulægsta fólksins á Íslandi rýrna að raunvirði milli ára. Það er líka með ólíkindum að ríkisstjórnin vilji skerða 5.000 heimili út úr vaxtabótakerfinu, þetta er mestmegnis tekjulágt fólk með þunga greiðslubyrði og þennan hóp á að skilja eftir. Stjórnarmeirihlutinn hefur hins vegar tækifæri núna í atkvæðagreiðslunni sem fram undan er til að leiðrétta þessi mistök og senda þannig skýr skilaboð inn á vinnumarkaðinn þegar krefjandi kjaraviðræður eru fram undan.