154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[15:50]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Samkvæmt frumvarpinu stendur til að hækka krónutöluskatta um 3,5% milli ára. Hvernig samræmist þessi hækkun, sem mun hafa bein áhrif á vísitöluna, markmiðum ríkisstjórnarinnar um að lækka verðbólguna, eitthvað sem ráðherrar hennar hafa ítrekað sagt vera mikilvægasta verkefnið hennar? Þessar skattahækkanir leggjast á alla óháð efnahag og bitna því hlutfallslega meira á þeim efnaminni. Auk þess má leiða að því líkur að krónutöluhækkanir geti haft ólík áhrif á karla og konur enda eru konur að meðaltali með lægri tekjur en karlar. Vert er að hafa í huga að krónutöluskattar hafa alls ekki alltaf fylgt verðlagi. Flestir hagsmunaaðilar, svo sem Heildarsamtök launafólks og vinnuveitenda og Öryrkjabandalag Íslands eru sammála um að hækkun krónutöluskatta um 7,7% síðustu áramót hafi aðeins aukið verðbólguþrýsting. Í aðdraganda komandi kjarasamninga þegar mikilvægt er að ríkið setji gott fordæmi leggur Flokkur fólksins til að krónutöluskattar taki ekki breytingum um næstu áramót. Flokkur fólksins mun ekki greiða atkvæði með neinum þensluhvetjandi sköttum eða gjöldum sem geta aukið við verðbólguna.