154. löggjafarþing — 49. fundur, 13. des. 2023.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
2. mál
Forseti. Það þarf að byggja upp fleiri hjúkrunarheimili þannig að við styðjum ekki þá breytingartillögu að hækkunin falli brott á gjaldinu í Framkvæmdasjóð aldraðra, en styðjum hins vegar síðan næstu grein sem er um að rekstrarkostnaður hjúkrunarheimila verði ekki greiddur af Framkvæmdasjóði aldraðra.