154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:03]
Horfa

 efh.- og viðskn.Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Flokkur fólksins mótmælir hækkun útvarpsgjaldsins. Það á ekki að hækka nefskatta í blússandi verðbólgu. Ekki hægt að leggja meira á heimilin auk þess sem Flokkur fólksins mótmælir öllum þensluaukandi gjöldum þegar illa gengur að ná verðbólgu niður nema það sé til þess að styðja heimilin og þá verst settu með beinum hætti.