breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Við í Flokki fólksins leggjum til að eignaskerðingarmörk vaxtabóta verði hækkuð um 12% á milli ára sem er í raun samhljóða tillögu Samfylkingarinnar. Við munum því styðja hana og óvíst að okkar komi þá til atkvæða.
Ég vildi óska að ekki væri þörf á vaxtabótum. Ég tel að áherslan ætti að felast í því að koma í veg fyrir að bankarnir fái að blóðmjólka heimilin og græða stórkostlega á því en ekki að ríkið komi með plástur í formi vaxtabóta og leggi út kostnað til að bæta heimilunum skaðann sem bankarnir hafa valdið. Bankarnir eiga að greiða fyrir skaðann sem þeir hafa valdið, ekki skattgreiðendur. Það er eitthvað mjög öfugsnúið við þetta allt. En það er þyngra en tárum taki að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skuli ekki sýna meiri skilning á stöðunni sem blasir við 5.000 fjölskyldum sem hafa það lágar tekjur og skulda svo mikið að þær hefðu átt rétt á vaxtabótum áður en vextir fóru að hækka en munu ekki fá þær þegar vextir hafa hækkað svo mikið að skuldabyrði þeirra hefur aukist um tugi eða hundruð þúsunda í hverjum mánuði vegna þess að verðmat á íbúðum þeirra hefur hækkað á pappír þó að ráðstöfunartekjur þeirra séu þær sömu og áður. Að svipta þetta fólk vaxtabótum heitir einfaldlega að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, um það hljótum við öll að vera sammála hvað sem okkur finnst um vaxtabætur að öðru leyti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)