154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:11]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í hverjum kjarasamningum á fætur öðrum er lofað tilfærslum í millifærslukerfunum til að styðja við hópa sem jafnvel standa höllum fæti. En því miður er það þannig að síðan eru skerðingarmörkin látin leka, ekki bara í einu kerfinu heldur í hverju kerfinu á fætur öðru. Við sjáum þetta í persónuafslættinum, við sjáum þetta í húsnæðis- og vaxtabótum, við sjáum þetta í barnabótum og við sjáum þetta í ellilífeyris- eða örorkubótum. Þetta er alls staðar svona. Þannig að ríkisstjórnin sem lofar að bæta einhverjum eitthvað tekur það til baka með því að breyta skerðingarmörkum. Við í Viðreisn sættum okkur ekki við það, sérstaklega ekki á þessum tíma þegar fólk á í vanda. Það eru bara mikil vandamál sem blasa við fólki sem er að glíma við stórfelldar hækkanir afborgana og það ræður illa við þetta. Þegar er síðan verið að taka þetta í burtu þá segir Viðreisn nei.