breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Greinin sem við greiðum hér atkvæði um varðar þjónustu við fatlað fólk en þjónustan fluttist til sveitarfélaganna árið 2011. Í kjölfar samþykktar og fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hérlendis hafa fylgt mikilvægar laga- og reglugerðarbreytingar sem hafa aukið og bætt þjónustu við fatlað fólk til muna og styrkt rétt þess til sjálfstæðs lífs. Ég fagna þessari jákvæðu þróun þó að verkefnin séu enn stór fram undan. Á síðustu árum hefur farið fram mikil og vönduð vinna við að greina ástæður þess mikla kostnaðarauka sem orðið hefur á þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Á grundvelli þeirrar greiningar hefur ríkisstjórnin ákveðið að mæta halla sveitarfélaganna vegna málaflokksins með tæplega 12 milljarða kr. auknum árlegum fjárveitingum þar sem tæpir 6 milljarðar komi inn á árinu 2023 og aðrir 6 komi inn á næsta ári. Ég fagna því sérstaklega að komin sé niðurstaða sem ég tel ásættanlega fyrir báða aðila þótt frekari vinna bíði okkar við úrlausn fleiri þátta. — Ég segi já.