breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um tillögu sem felur í sér hærri endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna uppbyggingar á íbúðum í almenna íbúðakerfinu. Þetta er samhljóða tillögu sem við vorum með í Samfylkingunni um að draga til baka breytingu sem átti sér stað í lögum í vor þar sem þessi ívilnun var minnkuð.
Ég vil vekja athygli þingheims á umsögn sem barst frá Bjargi til Þjóðhagsráðs fyrr í vetur þar sem var talað um að það sé 70% af kostnaði sem fellur til vegna almennrar uppbyggingar, sem hækkar út af þessu og þessari breytingu. Það var búið að reikna út að þessi breyting sem fór í gegnum stjórnarheimilið í vor hafi verið andvirði heillar íbúðar í 60 íbúða í byggingu. Þetta er hækkun sem leggst beint á leigutaka. Hér er verið að leita að leiðum til að lækka verðbólgu, lækka húsnæðiskostnað, lækka leiguverð. Hér væri hægt að vera með beinar aðgerðir inn á leigumarkað fyrir viðkvæmasta hópinn af fólki og hér er verið að fella þessa tillögu.