breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Herra forseti. Hreinar vaxtatekjur bankanna á fyrstu níu mánuðum ársins voru 113 milljarðar kr. Hér erum við að tala um að hækka bankaskattinn upp í 0,838%, það gefur okkur 30 milljarða í ríkissjóð. Við teljum í Flokki fólksins að bankarnir séu vel aflögufærir. Við teljum að það sé líka algerlega úr lausu lofti gripið að taka vald af löggjafanum til að koma í veg fyrir það að þessi bankaskattshækkun yrði send beint í andlitið á viðskiptavinum bankanna aftur. Okkur er í lófa lagið að tryggja það að við fáum þennan bankaskatt og nýtum hann í þágu þjóðarinnar allrar og þeirra sem verst eru staddir hér heldur en að láta þessa banka halda áfram að níðast á samfélaginu, safna auð með augun rauð á meðan hina brauðið vantar. Það er kominn tími til alvöruaðgerða, virðulegi forseti. — Ég segi já.