breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegur forseti. Í atkvæðagreiðslu þessari kemur fram mjög sérstakt viðhorf gagnvart bankakerfi landsmanna. Þeir græða eins og enginn sé morgundagurinn í verðbólgunni sem nú geisar. En síðan þegar við hugsum um heimilin þá skiptir voða litlu máli hvort það séu vaxtabætur. Og svo er það varðandi sveitarfélögin; fiskeldissjóður og fiskeldisgjaldið, þá skipta þau ekki máli. Við verðum að fara að taka bankakerfið af þeim stalli sem það er á og búið að vera frá því fyrir hrun og setja það eins og almennt fyrirtæki í landinu. Það er ekki guð almáttugur á nokkurn einasta hátt sem er að stjórna þessu bankakerfi. Það er alveg kominn tími til að þeir greiði sanngjarnt gjald í sameiginlegan sjóð landsmanna og nú á þessum tímum, eins og í ár, er hagnaður bankanna 80–100 milljarðar kr., þá munar engu að setja gjald á sem er 0,37% í bankaskatt, það skiptir þá ekki nokkru einasta máli. (BLG: Þetta er ekki nógu metnaðarfullt hjá ykkur.)