154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[16:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hér er um að ræða nokkurn veginn lokauppgjör ársins 2023. Það á eftir að klára að setja það í ríkisreikning þegar allt kemur til alls. Í upphafi árs eða í lok síðasta árs er í rauninni var lagt fram þetta fjárlagafrumvarp fyrir árið 2003 með því markmiði að það væri barátta gegn verðbólgunni. Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram var spáð 4,9%, verðbólgu fyrir árið 2003. Þegar fjárlagafrumvarpið var samþykkt var spáð 5,6% verðbólgu. Núna er hún 8% og stefnir í 8,7% samkvæmt nefndaráliti. Það má með sanni segja að tilraun ríkisstjórnarinnar til að hafa hemil á verðbólgunni með þessum fjárlögum fyrir árið 2003 hafi ekki heppnast þrátt fyrir auknar stýrivaxtahækkanir, um 3% eða eitthvað svoleiðis á sama tíma. Þannig að við erum einfaldlega að horfa upp á glataða efnahagsstefnu, mistök í efnahagsstefnu. Þetta er ekkert flókið.