154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[16:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Heildargjaldaheimildir varðandi fjáraukann fyrir 2023 eru 85 milljarðar. Það er rétt að vekja athygli á því að rúmur helmingur af því er vegna lífeyrisskuldbindinga, vegna launasamninga. Kjarasamningar fóru umfram það sem var reiknað með í fjárlögum síðasta árs. Síðan eru 26 milljarðar vegna vaxtagjalda. Þetta eru því yfir 70 milljarðar af 85 sem fara í þessa tvo liði. Stærstu einstöku aðgerðirnar eru í Grindavík í þremur málum sem voru rædd mikið í haust, 5,7 milljarðar, og síðan stuðningur til bænda upp á 2,1 milljarð.

Við þekkjum öll ástæðurnar fyrir því að við erum að styðja bændur á þessum erfiðu tímum eins og við höfum kynnst núna. Það er ekki bara vaxtastigið, það er fyrst og fremst líka og vert að minnast á þær gríðarlegu aðfangahækkanir sem urðu við innrás Rússa í Úkraínu og höfðu líka þróast mánuðina á undan í gegnum áburðinn, kjarnfóður og önnur aðföng bænda. Þannig að ég vil greiða atkvæði með þessu máli og finnst mikilvægt að þessi stuðningur komi fram á öllum þeim sviðum sem ég hef minnst á hér.