fjáraukalög 2023.
Virðulegur forseti. Við í Viðreisn styðjum þetta eindregið. Það skiptir máli að það er verið að hlusta á mikið og þungt ákall frá bændum. Þeir hafa talað reyndar um allt að 12 milljarða en 5 milljarðar þar af eru vegna fjármagnskostnaðar sem er að íþyngja þeim eins og svo mörgum öðrum hópum í samfélaginu. Þetta er að mínu mati mjög mikilvægt skref til að koma til móts við bændur sem ég segi að við í Viðreisn styðjum. Hins vegar þurfum við að taka áfram samtal um það hvernig við höldum áfram að styðja við íslenskan landbúnað en sóknarfæri fyrir hann eru gríðarleg. Þá skiptir máli að við búum þannig í haginn að grundvöllurinn verði þannig að bændur geti gripið þau tækifæri sem nútíminn og framtíðin býður upp á. Við í Viðreisn segjum því: Við styðjum þetta eindregið en köllum eftir frekara samtali til að styðja og efla enn frekar íslenskan landbúnað. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)