154. löggjafarþing — 49. fundur,  13. des. 2023.

fjáraukalög 2023.

481. mál
[17:14]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja fram 2,7 milljarða til byggingar varnargarða í kringum Svartsengi og Grindavík. Mikilvægt verkefni og vonandi byrjunin á því að við Íslendingar horfum aðeins lengra en bara í þá ofanflóðagarða sem við höfum hugsað um hingað til varðandi það hvernig við getum byggt upp viðnámsþol þjóðarinnar, sérstaklega þegar kemur að náttúruvá. Því styð ég þetta að sjálfsögðu.