154. löggjafarþing — 50. fundur, 14. des. 2023.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að á eftir umræðum um munnlega skýrslu utanríkisráðherra er ráðgert að gera hlé á þessum þingfundi til kl. 14 fyrir nefndafundi. Klukkan 14 hefst fundur aftur og verða þá atkvæðagreiðslur um afbrigði.
Einnig vill forseti geta þess að fundur getur staðið fram á kvöld ef þörf krefur svo ljúka megi umræðum um dagskrármálin.