stjórnmálasamband Íslands við Ísrael.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrirspurnina. Vissulega er það svo að við höfum öll, alþingismenn, verið að fá áskoranir um að beita okkur fyrir því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael og beita Ísrael viðskiptaþvingunum. Ég vil nú byrja á að segja að í þessari grein sem hv. þingmaður nefnir þá sagði ég vissulega að þetta þyrfti að taka til skoðunar og þegar við horfum upp á aðrar eins mannúðarhörmungar og við horfum núna upp á Gaza er mikilvægt að allar leiðir séu skoðaðar í þeim efnum. Við höfum svo sannarlega gert það, íslensk stjórnvöld, Alþingi. Ég vil nú byrja á að segja að það er eitt af fáum þjóðþingum sem hafa beinlínis ályktað um þessi mál og sent mjög skýr skilaboð. Í kjölfarið hafa íslensk stjórnvöld borið þau skilaboð hvar sem við höfum komið. Það að hafa átt sér stað samtöl við bæði sendiherra Ísraels og sendiherra Palestínu. Íslensk stjórnvöld hafa stóraukið framlög og hafa gert það í gegnum UNRWA, sem er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem fer með mannúðaraðstoð inni á svæðinu. Við höfum talað mjög skýrt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og nú síðast beittu íslensk stjórnvöld sér þannig að við studdum tillögu Antónios Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að beita svokallaðri 99. gr. og fá öryggisráðið til að taka afstöðu. Við vitum öll hvernig sú atkvæðagreiðsla fór. Í kjölfarið ályktaði allsherjarþingið og Ísland studdi ekki bara þá tillögu heldur var meðflutningsmaður. Þannig að höfum við verið að fylgja eftir tillögu Alþingis? Já. Ísland á í stjórnmálasambandi við mörg ríki sem við erum gríðarlega ósammála. Ég get nefnt Norður-Kóreu, ég get nefnt Rússland, ég get nefnt Íran og fleiri ríki. Stjórnmálasamband er forsenda þess að það sé hægt að koma afstöðu á framfæri, til að mynda við sendiherra Ísraels, af því að við höfum einmitt gert það. Þess vegna er það okkar afstaða í ríkisstjórn Íslands að það sé ekki rétt nálgun að slíta stjórnmálasambandi.