154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

stjórnmálasamband Íslands við Ísrael.

[10:37]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er gott að fá það a.m.k. skýrt fram að hæstv. forsætisráðherra styður það ekki að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Þá kannski vaknar sú spurning hvort hæstv. forsætisráðherra styðji þá nálgun að minnka stjórnmálaleg tengsl við Ísraels, t.d. með því að segja upp trúnaðarbréfi við sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi eða að segja upp samningi við ræðismann Íslands í Ísrael. Það eru ýmis skref sem eru í átt við þau sem hafa verið tekin gagnvart Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu sem er hægt að grípa til núna til að auka þrýsting. Ég heyrði heldur ekki svar við spurningu minni til hæstv. ráðherra hvort hún telji ástæðu til þess að hefja viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael og ef ekki, hvers vegna ekki.