ástandið í fangelsismálum.
Hæstv. forseti. Það ríkir ófremdarástand í fangelsismálum, ástand sem eftirlit umboðsmanns Alþingis ber vitni um og einnig ný stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun. Niðurstöðurnar eru sláandi. Þær eru á ábyrgð þeirra sem setið hafa í dómsmálaráðuneytinu undanfarin ár og síðastliðin tíu ár hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins vermt sæti dómsmálaráðherra. Ítrekaðar ábendingar umboðsmanns Alþingis, Afstöðu, Fangavarðafélagsins, Rótarinnar og aðstandenda fanga virðast lítil áhrif hafa á framþróun á þessum málaflokki. Við blasir vanfjármögnun og vanræksla. Ástandið á Litla-Hrauni er til skammar og engum bjóðandi. Að telja aðbúnað fanga þar stuðla að betrun og mannrækt er í besta falli öfugmæli. Aðstaðan sem veitt er til fjölskylduheimsókna er dapurlegur vitnisburður um hvað við teljum börnum bjóðandi. Róður Fangelsismálastofnunar er þungur og fjárskortur hennar hefur keðjuverkandi áhrif. Það er undirmönnun á flestum sviðum. Það vantar 18 ársverk fangavarða og tíu sérfræðinga til að uppfylla öryggiskröfur og aðrar kröfur um aðbúnað fanga. Illa gengur að stytta boðunarlista og fyrir kemur að dómar fyrnast, t.d. ofbeldisdómar.
Forseti. Við getum ekki beðið eftir nýju fangelsi í fimm ár eða meira. Við verðum að grípa til aðgerða núna sem stuðla að betri rekstri Fangelsismálastofnunar og velferðar í málefnum fanga og aðstandenda þeirra sem eðlilegt er að gera kröfur til í velferðarríki sem kennir sig við lýðræði. Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra: Hvernig hyggst hún bregðast við þessari stöðu sem lýst er bæði í álitum umboðsmanns og í stjórnsýsluúttektinni?