ástandið í fangelsismálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég tek undir með hv. þingmanni að staðan í fangelsismálum okkar Íslendinga er alvarleg og hefur verið brugðist við því nú þegar. Ég ákvað á fyrstu vikum mínum í starfi sem ráðherra að hefja tafarlaust uppbyggingu á nýju fangelsi á Litla-Hrauni enda telur ráðherra að aðstæður á Litla-Hrauni séu alls ekki í góðu horfi. Húsakostur þarfnast endurbóta og mikils viðhalds og fyrirrennari minn í starfi var búinn að tryggja fjármagn til að fara í endurbætur á fangelsinu og nýbyggingu. Það var síðan mat sérfræðinga sem að málinu komu að húsakostur á Litla-Hrauni væri í verra ásigkomulagi en talið var og því tók ég þá ákvörðun að hefja tafarlaust uppbyggingu á nýju fangelsi.
Ég vil líka fá að ítreka það, af því að hv. þingmaður nefnir hér manneklu og það þurfi að bæta við starfsfólki, að Fangelsismálastofnun voru tryggðar 250 millj. kr. inn í reksturinn á þessu ári sem varð varanleg viðbót einmitt til að fjölga starfsfólki. Sömuleiðis var aðhaldskrafan tekin af fangelsunum sem munar svo sannarlega um. Einnig voru samþykktar 80 millj. kr. til þess að bæta í menntun fangavarða og tryggja þar með hæfi þeirra til að sinna sínu mikilvæga starfi innan fangelsanna.