ástandið í fangelsismálum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Við vitum auðvitað að hún brást fljótt við og hyggst flýta uppbyggingu nýs fangelsis. Það tekur hins vegar mörg ár. Það þarf auðvitað líka að byggja á stefnumótun um velferð fanga og þá kannski ekki síst kvenfanga, sem var atriðið sem ég gat ekki komið að í fyrri spurningu minni, af því að við vitum að það er algjört ófremdarástand, eins og álit umboðsmanns sýna, m.a. í aðstæðum kvenfanga og aðstandenda þeirra hér á landi. Þetta er mjög alvarleg staða. Endurbóta er þörf vegna þess að við getum ekki beðið eftir nýju fangelsi á meðan Litla-Hraun grotnar niður. Það er hreinlega ekki boðlegt og það brýtur í bága við skuldbindingar okkar er varða mannréttindi fólks. Mér er kunnugt um hið varanlega framlag en það er samt þannig að Fangelsismálastofnun er í mjög miklum rekstrarvanda, mjög miklum, og ég er mjög hrædd um að það sem hér var nefnt af ráðherra dugi ekki til til að vinda ofan af honum.