154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

ástandið í fangelsismálum.

[10:51]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að vekja hér máls á aðstæðum kvenfanga sem að mati ráðherra eru ekki boðlegar. Við erum með óvenjumarga kvenfanga núna í fullnustukerfinu og þessir fangar hafi verið vistaðir í öryggisfangelsinu á Hólmsheiði sem er ekki kvennafangelsi. Til að bregðast við því hef ég boðað aðgerðir til að mæta stöðu kvenfanga í fangelsum og þar ber hæst að fjölgað verður plássum á Sogni sem eru opin úrræði. Þar stendur til að fjölga plássum um 14 sem mun gefa konum allt önnur tækifæri inni í þessu kerfi, þær geta verið þar í opnu fangelsi. Við vonumst til að þar með munum við stíga stór skref í að bæta aðstöðu kvenfanga (Forseti hringir.) og einmitt að þær geti líka notið sambærilegrar þjónustu og karlfangar gera í kerfinu.