viðbrögð við stöðu Íslands í PISA-könnuninni.
Virðulegi forseti. Niðurstöður nýútkominnar PISA-könnunar um grunnfærni nemenda í læsi, stærðfræði og náttúruvísindum eru vægast sagt hrikalegar fyrir Ísland. Ísland er langt fyrir neðan hin Norðurlöndin og skrapar þar botninn. Af ríkjum OECD er Ísland einnig nálægt botninum. Af 37 löndum fá aðeins fimm ríki lægri einkunn en Ísland. Það eru Grikkland, Chile, Mexíkó, Kostaríka og Kólumbía. Er þetta sá hópur sem við eigum að tilheyra þegar kemur að menntamálum í heiminum? Við erum einnig svíkja afburðanemendur. Við erum með margfalt lægra hlutfall nemenda sem sýna afburðaárangur í könnuninni. Spurningin er hvort hæstv. ráðherra ætli að axla ábyrgð og viðurkenna að við höfum verið á rangri leið. Ætlar hæstv. ráðherra að viðurkenna að það er hann sem ber ábyrgð á stjórnkerfi menntamála í landinu og enginn annar og ber því á endanum ábyrgð á hinni hrikalegu útkomu líkt og menntamálaráðherrar á undan honum? Og að lokum: Ætlar hæstv. ráðherra að viðurkenna að hugsmíðahyggjan og svokallað byrjendalæsi, kennsluaðferð sem þróuð var hjá Háskólanum á Akureyri og kennd er í langflestum grunnskólum á Íslandi, skilar ekki góðum árangri?
Við getum ekki breytt um stefnu nema horfast í augu við staðreyndir. Við getum ekki breytt um stefnu nema við viðurkennum að við höfum verið á rangri braut. Ætlar hæstv. ráðherra að gera það? Það hefur verið vitað árum saman að við höfum verið á rangri braut. Það kom fram í samantekt Menntamálastofnunar árið 2015. Þar kom fram að byrjendalæsi skilaði mun verri árangri í læsi en gamla aðferðin, Gagn og gaman. Þar munaði einum heilum í einkunn. Þetta er ekki einu sinni mál frá 2015 því í frétt frá 2004 um árangur Íslendinga í læsi árið 2002 kemur fram að 15.000 Íslendingar á fullorðinsaldri eigi við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða og gera megi ráð fyrir að lítil lestrarfærni hái 20.000 manns til viðbótar. (Forseti hringir.) Það voru 35.000 manns sem kunnu ekki að lesa árið 2002. Þá var sagt að við værum á sama stigi og Norðurlöndin en nú hefur annað komið fram.