154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

viðbrögð við stöðu Íslands í PISA-könnuninni.

[10:55]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og segja það að niðurstöður PISA eru alvarlegar. Það hef ég sagt sem ráðherra. Ég held að við getum öll sammælst um að við viljum gera breytingar til þess að ná betri árangri þegar kemur að þessum mikilvæga þætti sem sérstaklega lesturinn er og er grunnurinn undir öllu.

En það er hins vegar þannig að við þurfum líka að hugsa: Hvaða breytingar erum við að vinna að nú? Við erum að vinna að stórum breytingum sem voru ekki markaðar eingöngu nú á þessu kjörtímabili heldur með menntastefnu sem samþykkt var hér til 2030, sem unnin var í gríðarlega stórum hópi fólks, samþykkt hér á Alþingi, sem felur í sér grundvallarbreytingar á allri umgjörð menntakerfisins. Við vorum hér að samþykkja nýja stofnun, þjónustustofnun menntamála. Við erum með á þingmálaskrá nýja skólaþjónustulöggjöf sem verið er að vinna. Við erum líka að fara yfir matskerfið í skólakerfinu með nýjum matsferli sem við gerum ráð fyrir að koma með inn í þingið líka. Það sama á við um námsgögnin, námsgagnaútgáfu sem gert er ráð fyrir á vorþingi að komi frumvarp um hingað inn. Allt eru þetta þættir sem skipta gríðarlega miklu máli til lengri tíma litið. Ég held nefnilega að það sé varhugavert, líkt og nefnt var áðan þar sem fjallað var um samræmdu prófin og mikilvægi þeirra — það er ekki eitthvað eitt sem mun breyta árangri í m.a. lestri, hvort sem það eru aðgerðir eins og með hvaða hætti þú nálgast byrjendalestur eða hvort við tökum eingöngu námsgögnin eða eingöngu samræmt námsmat. Það þarf fleiri þætti þarna til og þess vegna fagna ég þeim ábendingum sem hafa verið að koma. En ég er ekki tilbúinn til þess að taka undir (Forseti hringir.) með hv. þingmanni um að við eigum að lögfesta eina aðferðafræði þegar kemur að lestri fremur en aðra. En við þurfum að eiga samtal um þessi mál og við þurfum að bregðast við.