niðurstöður PISA-könnunarinnar og umbætur í menntakerfinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Hún kemur að kjarnanum sem er grunnurinn undir menntakerfinu okkar sem er námskráin, hvað er í henni, hvernig hún er uppbyggð og hvað við leggjum áherslu á þar. Eitt er aðalnámskráin, síðan er það hvernig við framfylgjum henni og aðstoðum við að koma henni í framkvæmd. Ég er almennt þeirrar skoðunar að þegar kemur að menntamálum þá eigi sem flestir að koma að borðinu um mótun þeirra mála, af því að eins og hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu þá er það svo að það er grundvöllur alls í íslensku samfélagi hvernig við undirbúum börnin í gegnum menntakerfið fyrir framtíðina.
Nú er í gangi endurskoðun aðalnámskrár. Þetta er eitt af því sem við viljum ræða á næstunni í framhaldi af PISA, vegna þess að ég er sammála hv. þingmanni um það að við eigum ekki að láta PISA-niðurstöðurnar sofna. Við eigum að eiga samtal um það með hvaða hætti við þurfum að bregðast við. Þar þurfa allar raddir að heyrast en ekki eingöngu rödd ráðherrans eða ráðuneytisins. Þess vegna, þegar niðurstöður PISA voru kynntar, áttum við samtal við m.a. Samband íslenskra sveitarfélaga, háskólana, Kennarasambandið, Heimili og skóla, helstu hagaðila þegar kemur að menntamálum. Ég myndi vilja sjá pólitíkina á Alþingi koma inn í það samtal líka og mun tryggja það vegna þess að við viljum bregðast við og við viljum fá raddir ólíkra aðila inn í næstu skref. Aðalnámskráin er eitt af því sem undir er í samtali næstu mánuði, en líka að rýna þá vegferð sem við erum nú á. Erum við á réttri leið? Aðgerðirnar sem við höfum verið að samþykkja, m.a. hér í þinginu, eru þær skynsamlegar? (Forseti hringir.) Ég er þeirrar skoðunar að svo sé en ég yrði fyrstur tilbúinn til að bregða út af ef það yrði sameiginleg niðurstaða sem flestra hagaðila að við þyrftum að gera eitthvað með öðrum hætti (Forseti hringir.) vegna þess að menntakerfi er verkefni okkar allra og við eigum öll að koma að því og þar eigum við öll að hafa rödd.