Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Forseti. Hér komum við upp og látum máttlaus orð falla um að mikilvægt sé að draga úr spennu fyrir botni Miðjarðarhafs, að auðvitað eigi að virða alþjóðalög og koma á friði en þetta eru máttlaus orð því að þau munu engu breyta um tölu látinna barna á Gaza. Orð okkar hér munu engu breyta um fjölda spítala sem sprengdir eru í loft upp eða íbúðahverfa sem ekki eru lengur til. Tími orðanna er liðinn og tími aðgerða er löngu runninn upp.
Þann 9. nóvember síðastliðinn samþykkti Alþingi Íslendinga ályktun þar sem kallað var eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza-svæðinu og allar aðgerðir Ísraels sem brjóta gegn alþjóðalögum voru fordæmdar. Ályktunin var samþykkt í kjölfar hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu um ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé af mannúðarástæðum sem samþykkt var með 120 atkvæðum þann 27. október síðastliðinn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti einnig ályktun um mannúðarhlé þann 15. nóvember síðastliðinn. Ályktunin er bindandi fyrir aðildarríki en var hunsuð af Ísrael. Öll þessi orð hafa verið hunsuð af Ísrael. Frá því að þessar ályktanir voru samþykktar hefur Ísrael haldið áfram linnulausum árásum á saklausa borgara Palestínu, myrt þúsundir til viðbótar og gjöreyðilagt nauðsynlega innviði sem verndaðir eru samkvæmt alþjóðalögum. Ísraelskir ráðamenn hafa lýst yfir einbeittum ásetningi til þess að jafna Gaza við jörðu. Ráðherrar ríkisstjórnar Íslands segjast hafa talað skýrt á alþjóðavettvangi, þau hafa boðið upp á fullt af orðum, en orð eru ekki nóg. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þjóðarmorðið sem verið er að fremja fyrir augum alheimsins.
Forseti. Það er því miður ekkert nýtt að Palestína logi í stríðsátökum. Árið 2014 ritaði Katrín Jakobsdóttir grein um aðra árásahrinu Ísraelshers á Gaza þar sem 2.000 manns létu lífið og sagði, með leyfi forseta:
„Þegar börn eru stráfelld getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá. Ef ekkert lát verður á ofbeldisverkum Ísraels og ríkið heldur áfram að brjóta alþjóðalög og almenn mannréttindi hlýtur sú spurning einnig að vakna hvort rétt sé að slíta stjórnmálasambandi við ríkið.“
Ári síðar samþykkti landsfundur Vinstri grænna ályktun um að Ísland ætti að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Þegar hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir skrifaði greinina var hún óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu. Í dag leiðir hún ríkisstjórn landsins sem forsætisráðherra en minna hefur farið fyrir þessari afstöðu síðan hún tók við því keflinu. Árið 2014 höfðu 2.000 manneskjur látið lífið. Þegar þessi orð eru töluð hafa yfir 17.000 manns verið drepin á Gaza, saklausir borgarar í miklum meiri hluta og yfir helmingur þeirra börn. Meðalaldur látinna er fimm ár.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ber skylda til þess að fylgja eftir ályktun Alþingis af fullum þunga. Á meðan ríkisstjórnin tekur ekki skýra afstöðu með markvissum aðgerðum og krefst þess að ísraelsk stjórnvöld láti af árásum sínum og fylgi alþjóðalögum er Ísland meðsekt í hryllingnum á Gaza. Fólk kann að halda því fram að litla Ísland hafi engin áhrif í stóra samhenginu en lítil þúfa getur velt þungu hlassi, jafnvel á alþjóðavettvangi. Þannig var Ísland fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu og önnur lönd fylgdu á eftir. Þótt viðskipti okkar við Ísrael marki ekki stóran hluta ísraelsks efnahagslífs getur Ísland sett sterkt fordæmi sem aðrar þjóðir gætu fylgt. Íslensk stjórnvöld gætu einnig einhliða eflt stuðning við palestínskt flóttafólk með því að virkja 44. gr. útlendingalaga um fjöldaflótta líkt og gert hefur verið fyrir flóttafólk frá Úkraínu og það er hægt að ákveða strax í dag að leyfa öllum Palestínubúum sem eru hér nú þegar að vera hér áfram, þar með talið palestínskum börnum.
Dugleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gagnvart stríðsglæpum og þjóðernishreinsunum ísraelskra stjórnvalda er ekki í okkar nafni. Við fordæmum meðvirkni með aðför sem mannréttindasérfræðinga Sameinuðu þjóðanna hafa lýst sem þjóðarmorði. Okkur ber sem fullvalda ríki bæði siðferðileg og þjóðréttarleg skylda til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthellingar. Okkur ber með öðrum orðum skylda til að gera meira en að tala orð sem enginn heyrir.
Þingflokkur Pírata skorar á ríkisstjórnina að sýna frumkvæði í nafni framvarðarhlutverks Íslands í þágu mannréttinda, grípa til tafarlausra aðgerða til að koma á vopnahléi án tafa, stöðva frekari stríðsglæpi og mögulegt þjóðarmorð fyrir botni Miðjarðarhafs með öllum tiltækum ráðum. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin endurskoði stjórnmálasamband sitt við Ísrael, grípi strax til viðskiptaþvingana og hvetji önnur ríki til að gera slíkt hið sama, virki ákvæði útlendingalaga um fjöldaflótta til að auðvelda komu flóttafólks frá Palestínu til landsins og tryggi að palestínskt flóttafólk, þar með talið palestínsk börn, (Forseti hringir.) sem nú þegar eru á Íslandi, fái að vera hér áfram því þegar allt kemur til alls þá skiptir öllu máli að koma á friði.