Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Vopnahlé strax. Í tveimur orðum er þetta krafan sem við öll verðum að halda á lofti: Vopnahlé strax. Í tvo mánuði hefur eldi og brennisteini rignt yfir íbúa Gaza-strandarinnar. Afleiðingin er sú að um 20.000 hafa dáið, um helmingurinn börn. Ástandið er óbærilegt og svo alvarlegt að aðalritari Sameinuðu þjóðanna metur stöðuna þannig að heimsfriði sé ógnað og óskaði eftir því að öryggisráðið myndi grípa inn í. Þar var neitunarvaldi beitt af Bandaríkjunum eins og svo oft áður en allsherjarþingið samþykkti með yfirgnæfandi meiri hluta að krefjast vopnahlés. Ísland greiddi að þessu sinni atkvæði með því að hlé yrði gert á stríðinu, auðvitað í þeirri von að hægt sé að koma fólki til aðstoðar. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna lýsir stöðunni sem ólýsanlegum harmleik. Engin leið sé að viðhalda neyðaraðstoð til fólks á svæðinu. Skortur er á mat, vatni og rafmagni, spítalar eru ekki einu sinni griðastaður fyrir óbreytta borgara.
Fyrir fáeinum vikum samþykkti Alþingi ályktun sem var efnislega samhljóða þeirri tillögu sem Viðreisn hafði áður lagt fram. Það var mikilvægt skref eftir hjásetu Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum skömmu áður. Vinnubrögð Alþingis voru okkur öllum til sóma. Flokkadrættir voru lagðir til hliðar í þágu málstaðar sem enginn á að nýta sér til pólitískrar upphafningar. Alþingi talaði einni röddu. Þar voru hryðjuverk Hamas fordæmd og einnig aðgerðir Ísraelsstjórnar í framhaldinu. Þess var krafist að öllum gíslum yrði sleppt og að vopnahléi yrði komið á sem fyrst. Þá var kallað eftir rannsókn á öllum brotum stríðandi aðila á alþjóðalögum og að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að fjármagn fylgdi í slíka rannsókn og að bætt yrði í það framlag sem Íslendingar láta renna til mannúðaraðstoðar. Um þetta erum við öll sammála hér á Alþingi.
Auðvitað er það þannig að við öll í þessum sal og allir Íslendingar finnum fyrir vanmætti og sorg gagnvart þeirri grimmd og hörku sem hefur birst okkur á liðnum vikum. Blóðbaðið er skelfilegt, hryðjuverk Hamas voru skelfileg mannvonska og sömuleiðis eru heiftarleg viðbrögð Ísraels ekkert annað en skelfileg. Vopnahlé strax er því krafa. Því miður er það svo að þessi áratugavítahringur ofbeldis og morða mun að öllum líkindum halda áfram á meðan Hamas ræður för á Gaza-ströndinni og meðan ríkisstjórn Netanyahus er við völd í Ísrael. Langvarandi stríð og átök eru forherðandi og afleiðingin er sú að harðlínustefna ríkir beggja vegna víglínurnar. Slík stefna, slík hugsun og sá gegndarlausi hefndarþorsti sem því miður fylgir hefur bara eitt í för með sér og það er að illt verður verra og verra.
Fórnarlömbin í hildarleiknum eru alltaf óbreyttir borgarar, konur og börn, og að þessu sinni eru það íbúar á Gaza. Það er fólk sem ætti með réttu að fá skjól á Íslandi, rétt eins og íbúar Úkraínu sem hingað leita hafa fengið skjól. Það er sorglegt að sjá viðbrögðin við þeirri sjálfsögðu og eðlilegu kröfu um vopnahlé sem kom fram hjá Sameinuðu þjóðunum. Sótt verður áfram til fullnaðarsigurs, segir Netanyahu þrátt fyrir þrýsting alþjóðasamfélagsins. Utanríkisráðherrann segir að Ísraelsher muni halda áfram aðgerðum sínum með eða án stuðnings annarra þjóða. Þetta ber að fordæma vegna þess að rétturinn til sjálfsvarnar er ekki takmarkalaus, að tugþúsundir falli í valinn er ekki réttur til sjálfsvarnar. Það er enginn málstaðar svo góður eða háheilagur að réttlætanlegt sé að drepa börn í þúsundatali og undirokun og kúgun eru heldur ekki rök fyrir því að myrða ungmenni í hundraðatali með köldu blóði sem koma saman á hátíð til að dansa fyrir friði. Til lengri tíma blasir engin augljós lausn við sem gæti fært þessum þjóðum langvarandi frið. Áratugastríð og átök verða ekki leyst í einu vetfangi þótt við óskum þess heitt. Landsvæði sem er mikilvægt í þremur stórum trúarbrögðum er eðli máls samkvæmt viðkvæmt. Hér togast á með flóknum hætti svo litið sé til röksemda beggja þjóða, annars vegar sjálfstæðisbaráttan fyrir því að stofna eigin ríki á eigin landsvæði og svo trúarlegur rökstuðningur og sögulegur réttur á sama landsvæði.
Eina leiðin til friðar er að báðar þjóðir eigi sér tilverurétt. Bæði ríkin verða að viðurkenna og sýna í verki að öll mannslíf eru verðmæt óháð uppruna og þjóðerni. Eina lausnin er sú að lögð verði niður vopn og að raunverulegur samningsvilji þar sem virðing eins fyrir rétti hins er í forgrunni. Það verður enginn friður nema undirokun, kúgun, harðræði og hryðjuverkum linni. Það breytist ekkert með áframhaldandi sprengjuregni.
Það er auðvelt fyrir okkur Íslendinga að tala fyrir friði. Við erum herlaus þjóð sem á allt undir því að alþjóðalög séu virt. Við verðum að hafa í huga, hvaða skoðun sem við annars höfum, að blind hollusta við málstað sem brýtur á rétti annarra er ekki leiðin fram á við. Við eigum ekki bara að tala fyrir friði, við eigum líka að þrýsta á önnur ríki um að gera slíkt hið sama. (Forseti hringir.) Ef vinaþjóðir okkar, voldugar þjóðir, sjá ekki þessi augljósu sannindi þá eigum við að segja það hátt og skýrt. Rödd okkar skiptir máli og við eigum að beita henni.