Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem er að sjálfsögðu mjög mikilvæg. Það er náttúrlega þyngra en tárum tekur að fylgjast með þessum hörmungum sem dynja nú yfir á Gaza og öllum þeim saklausum borgurum sem þar láta lífið. Þær hörmungar eiga upphaf sitt í hryðjuverkaárás hryðjuverkasamtakanna Hamas 7. október síðastliðinn þar sem þeir slátruðu hreinlega saklausum borgurum, konum, börnum, kornabörnum, með viðbjóðslegum hætti. Ég hef sjálfur farið þarna niður eftir og séð aðstæður þar sem þessi hryðjuverk áttu sér stað og það er eiginlega ekki hægt að lýsa því með orðum sem þar fór fram. Viðbrögðin hjá alþjóðasamfélaginu voru lítil sem engin í byrjun. Það tók Sameinuðu þjóðirnar, eins og t.d. UN Women, sex vikur að fordæma morð á konum og börnum og kynferðislegt ofbeldi gagnvart saklausum borgurum í Ísrael af hálfu Hamas-samtakanna. Vonandi drögum við lærdóm af því.
Síðan verða náttúrlega þessi viðbrögð eins og við höfum horft upp á. Það er nú einu sinni þannig að engin þjóð og ekki heldur Ísrael lætur hryðjuverkaárás á eigin borgara óátalda en Ísraelar hafa hins vegar farið algjörlega fram úr sér í þeim viðbrögðum og við sjáum afleiðingar þess.
Ég vil líka halda því til haga að það er athyglisvert að Arababandalagið skuli ekki bregðast við og aðstoða þetta fólk. Þegar ég fór þarna niður eftir átti ég fund með palestínskum stjórnvöldum á Vesturbakkanum og þeir komu einmitt að máli við mig um að þeir væru mjög sárir yfir því að Arababandalagið skyldi ekki aðstoða við það að t.d. sannfæra Egypta um að þeir saklausu borgarar sem þurfa að leita skjóls skuli fá skjól í Egyptalandi. Það er spurt um það hvað við getum gert og við getum t.d. svo sannarlega reynt að sannfæra Arababandalagið um að koma þessu fólki til hjálpar. Það er hægt að gera það strax, það er hægt að opna strax landamærin að Egyptalandi svo fólk fái þar skjól frá þessum hörmulegu loftárásum. En það er ekki gert og það er lítið talað um það. Þetta kemur frá Palestínumönnum sjálfum og þeir hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að þetta skuli ekki hafa verið gert.
Ég vil auk þess koma aðeins inn á að það má ekki gleyma því að Hamas-samtökin hafa enga samúð með eigin fólki — enga. Það kom glögglega fram skömmu eftir að stríðið hófst þegar tekið var viðtal við leiðtoga Hamas í Katar þar sem hann lifir í vellystingum. Þegar hann var spurður hvort hann gerði sér ekki grein fyrir því hvaða afleiðingar þessi hryðjuverkaárás á Ísrael gæti haft fyrir hans eigið fólk svaraði hann að jú, jú, hann gerði sér alveg grein fyrir því, en bætti síðan við að það væri nauðsynlegt að fórna lífi Palestínumanna til að sigra Ísrael. Hann vildi þó að sjálfsögðu ekki fórna sínu fólki, sinni fjölskyldu sem lifir í vellystingum í Katar.
Þetta er veruleikinn sem því miður hið ágæta fólk, Palestínumenn, býr við. Þeir búa náttúrlega við hernámið eins og við þekkjum, sem við höfum fordæmt, en þeir búa einnig við stjórnvöld sem er algjörlega sama um þá. Þeir hafa falið sig á bak við óbreytta borgara. Það var stutt viðtal við Palestínumann sem var staddur á sjúkrahúsi í Gaza, það var arabísk fréttastofa sem tók viðtalið við hann og spurði hvar hann hefði slasast. Þá svaraði hann: Hér fela Hamas-liðar sig á bak við okkur, óbreytta borgara. Þeim væri nær, sagði hann svo í framhaldi, að fara til helvítis og fela sig þar. Þetta er Palestínumaður að tala um Hamas-liða sem ráða ríkjum á Gaza.
Hvað getum við gert? Jú, við erum í stjórnmálasambandi við Ísrael og Palestínu sem er afar mikilvægt. Við getum svo sannarlega talað fyrir friði og við eigum að gera það, við erum friðelskandi þjóð. Ég vona svo sannarlega að þetta stríð sé brátt á enda. Það eru vísbendingar um að Hamas-liðar séu að gefast upp og við sjáum vonandi þessi átök líða undir lok innan mjög skamms tíma. En við Íslendingar getum svo sannarlega látið að okkur kveða. Rödd okkar er mikilvæg.