154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:49]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessari umræðu. Ég tel að þingsályktunin um afstöðu Íslands vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs sé mjög góður grundvöllur fyrir hæstv. utanríkisráðherra til að standa á og mjög góð stefna. Þar er tekið á öllum þeim atriðum sem skipta máli; krafa um vopnahlé, krafa um að alþjóðalögum sé fylgt í einu og öllu í þágu mannúðar, öryggis almennra borgara og verndar borgaralegra innviða. Við fordæmum Hamas-árásina 7. október. Við fordæmum sömuleiðis aðgerðir ísraelskra stjórnvalda í kjölfarið sem brjóta gegn alþjóðlegum mannúðarlögum með óheyrilegum þjáningum fyrir íbúa og börn svæðisins. Gríðarlega brýnt er að stríðandi aðilar fylgi alþjóðalögum og að öll brot stríðandi aðila verði rannsökuð til hlítar. Ég skora á hæstv. utanríkisráðherra að sjá til þess að viðbótarframlög verði veitt af Íslands hálfu til rannsókna á brotum á alþjóðalögum sem hafa að öllum líkindum átt sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs í þessum átökum. Hin viðbjóðslegu dráp Hamas 7. október síðastliðinn réttlæta ekki dráp á þúsundum barna á Gaza. Þau verða aldrei réttlætt og eins og hér hefur komið fram hafa Ísraelsmenn algerlega farið fram úr sér í þeim hefndaraðgerðum sem þeir hafa staðið fyrir á Gaza. Við eigum að vinna saman með Norðurlöndunum á þessum vettvangi og ég skora á hæstv. utanríkisráðherra að brýna vinaþjóðir okkar á Norðurlöndum til að stíga enn þá framar og krefjast þess að þessum árásum verði hætt. Og hver ber ábyrgð á ástandi mála á Vesturbakkanum á hernumdu svæðunum, ef ekki hernámsveldið? Það er bara þannig.

Og hvað á að taka við eftir að hinum linnulausum árásum á Gaza linnir? Hvað verður þá? Hvað hugsa menn sér þá að gera? Hér er um grafalvarlegt mál að ræða (Forseti hringir.) og ég skora á hæstv. utanríkisráðherra að standa saman með hinum Norðurlöndunum svo rödd Norðurlandanna heyrist einum rómi í þessu gríðarlega mikilvæga máli.