154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

vopnalög.

349. mál
[17:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hluti af heiti frumvarpsins, undirheiti, er varðandi vörslu og þá náttúrlega sérstaklega skotvopna, sem er áhugamál mitt þar sem ég hef stundað bogfimi. Það komu umsagnir þaðan því það er ákveðinn galli í vopnalögunum eins og er sem er í rauninni frekar einfalt að laga og er óþægilegt að ferðin hafi ekki verið nýtt til þess að gera það. Staðan er sú að það er ekki hægt að halda bogfimimót ungmenna á Íslandi af því að bogar fyrir ungmenni eru einungis leyfðir upp að ákveðinni þyngd. Þannig að ungmenni t.d. í Noregi sem eru æfa bara á sína boga og koma með þá til Íslands og ætla að nota þá hér geta það ekki af því að það er einfaldlega ólöglegt fyrir þau að nota bogana sína, sem þau mega annars nota í Noregi. Það er aðeins öðruvísi að keppa með þyngri boga en léttari boga þó að sjálfsögðu sé hægt að aðlaga sig að því o.s.frv., en það er ekki boginn sem viðkomandi æfir sig með. Þetta er þeirra bogi, boginn sem er löglegt að nota í Noregi en það er ólöglegt að koma með hann til Íslands og nota í keppni hérna og hvað þá þegar kemur að jafningjum þeirra á Íslandi. Það er spurning hvort það væri hægt að skoða það, nýta ferðina.