154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

skattar og gjöld.

468. mál
[20:47]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Verðbólga hér á landi hefur minnkað minna eftir heimsfaraldur og áhrif stríðsins í Úkraínu en í flestum öðrum löndum sem við viljum bera okkur saman við. Þráláta verðbólgu hér á landi þarf að skoða í ljósi breytinga á verðbólgu í öðrum ríkjum. Það þarf að greina það hvað það er hér á landi sem veldur þessari þróun og kortleggja hvar við skerum okkur frá öðrum í þessum efnum. Staðan hér á landi bitnar harðast á tekjulágu fólki sem ver stærstum hluta launa sinna í húsnæðiskostnað og nauðsynjavörur. Þótt augljóslega sé íslenska krónan hluti vandans þar sem tengsl eru á milli gjaldmiðils og vaxta, verðlags og verðbólgu, þá skýrir krónan ekki allan þennan mun. Ísland sker sig einnig úr vegna sérstaklega umfangsmikilla umsvifa í ferðaþjónustu í hagkerfinu samanborið við í nágrannalöndunum.

Í grein í Vísbendingu sem kom út 1. desember bendir Gylfa Zoëga á að vöxtur ferðaþjónustunnar skýri mikinn aðflutning vinnuafls. Hann segir, með leyfi forseta:

„Einungis á þriðja ársfjórðungi fluttu til landsins 2.400 erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta samkvæmt nýútgefnum Peningamálum Seðlabankans. Þegar hagvöxtur er drifinn áfram af aðfluttu vinnuafli sem fyllir lágframleiðslustörf kemur ekki á óvart að framleiðni hefur ekki vaxið. Það er hagvöxtur, verg landsframleiðsla sem vex í heildina með fleira fólki, en hagvöxtur á mann er mun minni og framleiðsla á unna vinnustund vex mjög lítið.“

Gylfi bendir einnig á að jafnvel þó að vaxtahækkanir hafi slegið á hækkun húsnæðisverðs og fleiri íbúðir séu til sölu og húsnæðisverð lækkað að raunvirði, að háir vextir hafi slegið á einkaneyslu og innlenda fjárfestingu, geti stýrivextir Seðlabankans ekki slegið á fjölgun ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna og aðflutts vinnuafls verði til þess að halda húsnæðisverði háu í hlutfalli við laun. Stjórnvöld hafa í þessu ástandi ýtt undir fjölgun ferðamanna með fjölgun lendingarstæða á Keflavíkurflugvelli og með lægri virðisaukaskatti á ferðaþjónustu.

Vöxtur ferðaþjónustunnar kom okkur út úr efnahagsvanda, bæði eftir bankahrun og síðan eftir heimsfaraldur, en verkefnið til lengri tíma er að skapa umgjörð og búa til hvata sem leiða til aukinnar framleiðni í hagkerfinu og sjálfbærari ferðaþjónustu.

Samfylkingin hefur gagnrýnt það að í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2024 og tekjubandormi sem því fylgir vanti markvissar aðgerðir til að draga úr verðbólgu og bregðast við afkomu- og húsnæðisvanda heimila. Við viljum öfluga velferð sem byggð er á öflugu atvinnulífi. Nú er ferðaþjónustan orðin stærsta atvinnugreinin og sú atvinnugrein sem er og hefur verið í mestum vexti. Við erum á örskömmum tíma orðin mjög háð greininni efnahagslega og verðum að sjá til þess að hún falli ekki eins snöggt og hún reis. Kostnaðurinn, ef það gerist, félli ekki á neinn annan en almenning í þessu landi sem er varla búinn að jafna sig eftir fall bankanna sem uxu á skömmum tíma okkur yfir höfuð.

Það er að mínu mati löngu tímabært að innheimta sanngjörn gjöld sem ferðamenn greiða. Fyrir það sem þá innheimtist verði fjárfest í vegum, heilbrigðisþjónustu, löggæslu og betra aðgengi að ferðamannastöðum. Sveitarfélögin verða að fá hluta af auknum tekjum til að mæta þjónustu við ferðamenn og viðhalda innviðum. Þá þarf að stýra uppbyggingu ferðaþjónustunnar betur. Með virkari gjaldtöku og flokkun á neti áfangastaða um allt land er hægt að draga fram gæði og minnka áherslu á magn. Um leið og uppbygging er á Keflavíkurflugvelli þarf að mæta fjölgun ferðamanna með því að millilandaflug á Akureyri og Egilsstöðum verði raunverulegur valkostur. Í grunninn þarf að setja fram raunverulega stefnu um hvernig sé hagkvæmast og best að ferðaþjónustan þróist til framtíðar, meta tekjur og kostnað við fjölgun ferðamanna og hvað teljast megi æskilegt umhverfi atvinnugreinar í miklum vexti. Við þurfum að tryggja að orðspor Íslands sem ferðamannastaðar verði áfram gott og fjárfestingar sem ráðist hefur verið í beri ríkan ávöxt.

Ferðaþjónustan hefur vaxið svo mikið á undanförnum áratug að hún skilar nú meiri gjaldeyristekjum en sjávarútvegurinn. Hún er á örstuttum tíma orðin ein af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar. Það hlýtur að vera forgangsverkefni stjórnvalda að setja fram stefnu um hvernig hagkvæmast er að ferðaþjónustan þróist til framtíðar, meta kostnað við ágang ferðamanna á fjölförnum stöðum og hvað teljast megi æskilegt rekstrarumhverfi atvinnugreinarinnar. Það þarf að horfa til framtíðar í þessari atvinnugrein sem öðrum og þó fyrr hefði verið.

Í samráðsgátt stjórnvalda eru fyrstu drög að aðgerðum í aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030. Byggt er á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps um mótun ferðamálastefnu 2030 og aðgerðaáætlun hennar. Umsagnarfrestur í samráðsgáttinni rann út 30. nóvember sl. Í drögunum er m.a. fjallað um samkeppnishæfni, verðmætasköpun og gjaldtöku. Þar segir að mikilvægt sé að þróun ferðaþjónustunnar sé í samræmi við þau takmörk sem náttúruauðlindir landsins, ferðamannastaðir, innviðir og samfélag setja. Náttúruauðlindir og samfélagsleg þolmörk munu ekki umbera óheftan aðgang með tilheyrandi aukinni þröng og hugsanlegum skemmdum. Einnig þurfi að tryggja samkeppnisstöðu ferðaþjónustu á alþjóðlegum grundvelli og við aðrar atvinnugreinar innan lands.

Um gjaldtöku segir, með leyfi forseta:

„Allir þeir sem eru með skattalegt heimilisfesti hér á landi skulu undanþegnir gjöldum fyrir aðgang á staði hins opinbera, enda auðlindir íslensku þjóðarinnar sem um ræðir. Erlendir ferðamenn greiði sjálfir fyrir aðgang að ferðamannastöðum á vettvangi ríkisins, á vefsíðu eða með öðrum sambærilegum hætti. Með því er líklegra að umrætt gjald hafi lágmarksáhrif á eftirspurn ferðamanna eftir áfangastaðnum Íslandi.

Aukinn fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi hefur leitt til aukins álags á náttúru og innviði landsins. Fjölgun þeirra ferðamanna sem sækja hingað til lands hefur ekki eingöngu verið um fluggáttir heldur einnig með aukinni komu skemmtiferðaskipa. Helstu ferðamannastaðir landsins hafa nú þegar fundið fyrir þessari öru þróun með einum eða öðrum hætti í mynd aukinna þrengsla og ágangs á þeirra náttúru og innviði. Vísbendingar eru um að á sumum þessara staða sé álagið nú þegar komið að eða yfir þolmörk, að minnsta kosti á vissum árstímum. Ferðaþjónusta á hverjum tíma þarf að gæta að því að ekki reyni á umhverfisleg, efnahagsleg eða samfélagsleg þolmörk.“

Sem dæmi um verkþætti sem lagðir eru til í þessari skýrslu er að skipaður verði starfshópur til að útfæra fyrirkomulag álagsstýringar á ferðamannastöðum í eigu ríkisins með tillögur þessa starfshóps að leiðarljósi.

Í umfjölluninni um skemmtiferðaskip er dæmi um verkþátt, með leyfi forseta:

„Lagt verði á með lögum eða öðrum viðeigandi hætti sértækt gjald á veru erlendra skemmtiferðaskipa sem flytja ferðamenn til Íslands og hringinn í kringum það sem kalla má innviðagjald. Gjaldtakan miðist við að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra aðila. Sanngjarnt væri ef slíkt gjald yrði innleitt í tveimur áföngum þannig að það hækki til dæmis yfir tveggja ára tímabil, þar sem það sé hugsað til lengri tíma og þá sé gætt að fyrirsjáanleika fyrir atvinnugreinina.“

Síðan er fjallað um gistináttaskatt, kosti hans, en einkum galla. Bent er á að undanþágureglur frá gistináttaskatti séu að ekki skuli leggja hann á gistingu sem ekki ber virðisaukaskatt. Þeir sem selja gistingu fyrir innan við 2 millj. kr. ári eru undanþegnir virðisaukaskattsskyldu. Það þýðir að stór hluti heimagistingar greiðir ekki gistináttaskatt. Seldar gistináttaeiningar á sjó eru jafnframt undanþegnar gistináttaskatti en þessu vill stjórnarmeirihlutinn breyta og gerir um það tillögu.

Líkt og kemur fram í tollalögum tekur tollfrelsi til skemmtiferðaskipa sem eru skráð erlendis og notuð í innanlandssiglingum í allt að fjóra mánuði á hverju 12 mánaða tímabili. Gert er ráð fyrir í frumvarpinu að tollfrelsi þetta verði lagt af en meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til að því ákvæði verði frestað.

Svo segir um gistináttaskatt í stefnudrögunum, með leyfi forseta:

„Gistináttaskattur er efnahagslega brenglandi skattheimta sem skerðir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu og eykur óhagræði á milli ólíkra tegunda gististaða.“

Síðan er lagt til að fella úr gildi lög um gistináttaskatt þannig að hann verði afnuminn sem allra fyrst og samkeppnisstaða ólíkra tegunda gististaða hér á landi verði jöfnuð.

Forseti. Svo mörg voru þau orð um gistináttaskattinn í drögum að stefnu fyrir ferðaþjónustu til ársins 2030. En hvað er stjórnarmeirihlutinn að gera núna með frumvarpi sem við ræðum? Jú, einmitt að leggja á gistináttaskatt. Í frumvarpinu er lagt til að skatturinn verði 300 kr. á hvern dvalargest, sama verð á tjaldstæðum, farfuglaheimilum jafnt sem lúxushótelum. Margar umsagnir komu um þetta og sem nærri má geta bentu rekstraraðilar tjaldstæða og farfuglaheimila á óréttlætið. Þannig bæri sex manna herbergi á farfuglaheimili 1.800 kr. gistináttaskatt, sem væri hátt hlutfall heildarverðs, en herbergi á lúxushóteli bæri aðeins 300 kr. á mann sem væri mjög lágt hlutfall af heildarverði hótelherbergisins.

Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til breytingar sem farið er yfir í nefndaráliti meiri hlutans og hv. formaður nefndarinnar fór ágætlega yfir hér fyrr í dag, sem er 300 kr. á hvert tjald eða tjaldvagn, 600 kr. á hvert gistiherbergi og 1.000 kr. á hvern klefa skemmtiferðaskipa. Breytingin er eitthvað sanngjarnari en 300 kr. á mann en engu að síður stendur sú gagnrýni um gistináttaskattinn í drögunum að stefnu fyrir ferðaþjónustuna óhögguð.

Umræðan um að kokka upp nýtt gjaldtökukerfi fyrir ferðamenn skautar alltaf fram hjá því að við búum við virðisaukaskattskerfi sem virkar ágætlega. Við setjum á neysluskatta í formi virðisaukaskatts á vöru og þjónustu. Gistingin er í neðra þrepi þess kerfis og nýtur þannig skattstyrks. Ferðamenn fá afslátt af gistiþjónustunni og hótel og gistiheimili greiða aðeins mismun á inn- og útskatti til ríkisins og ef hann er neikvæður greiðir ríkið rekstraraðilum mismuninn. Rökin fyrir þessum skattstyrk er að svona sé þetta í flestum löndum sem við viljum bera okkur saman við og sé til þess fallið að laða að fleiri ferðamenn til landsins. Duga þau rök þegar ferðaþjónustan hér á landi er mun fyrirferðarmeiri í hagkerfinu en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við? Ættu slíkir skattstyrkir ekki alltaf að vera tímabundnir og teknir til endurskoðunar í ljósi aðstæðna?

Forseti. Stjórnarmeirihlutinn fjallar um ákvæði frumvarpsins um lægra áfengisgjald á tiltekið magn áfengra drykkja til lítilla sjálfstæðra framleiðenda. Embætti landlæknis leggst gegn breytingum í þessa veru á lögum um gjald af áfengi og tóbaki. Að mati embættisins er með þessu verið að draga úr áhrifum áfengisgjaldsins sem er að takmarka skaða vegna áfengisneyslu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á þrjár árangursríkustu leiðirnar til að takmarka neyslu áfengis sem eru að takmarka aðgengi, verðlagning og takmörkun markaðssetningar. Svo segir í umsögn embættis landlæknis, með leyfi forseta:

„Embætti landlæknis undirstrikar og ítrekar enn og aftur fyrri afstöðu um mikilvægi þess að allar breytingar á málaflokknum kalla á heildræna nálgun og að erfitt geti verið að leggja mat á einstakar aðgerðir án þess að sérstaklega sé fjallað um mat á heildaráhrifum, bæði tilætluðum og óvæntum. Í þessu samhengi bendir embættið sérstaklega á mikilvægi þess að taka upp heildrænt lýðheilsumat á fyrirhuguðum aðgerðum sem gætu haft áhrif á lýðheilsu.

Verði umræddar breytingar samþykktar leggur embættið áherslu á að breytingar verði ekki innleiddar nema sem hluti af opinberri stefnu um málaflokkinn, þá annaðhvort í uppfærðri stefnu í áfengis- og vímuvörnum (rann út 2020) eða í nýrri stefnu.“

Síðan er í umsögninni bent á að vitað er að aukið aðgengi og lækkað verð muni auka áfengisneyslu og þar með valda aukinni sjúkdómsbyrði, þjáningu og samfélagslegum kostnaði. Tekjur ríkisins af sölu áfengis eru einungis brot af kostnaði þeim sem fellur á ríkið vegna áfengisneyslu.

Jafnvel þótt segja megi að það að gera litla áfengisframleiðendur samkeppnishæfari með þeim hætti sem lagt er til muni ekki hafa stórkostleg áhrif á áfengisneyslu er það samt skref í átt frá áherslum embættis landlæknis, þótt lítið sé. Sama má segja um nýlega ákvörðun Alþingis um að framleiðandi megi selja framleiðsluna á framleiðslustað. Það hefur t.d. aukið aðgengi að áfengi í Garðinum, mínum heimabæ, þar sem Litla brugghúsið starfar. Jafnvel þótt ég leggist ekki gegn breytingunni sem lögð er til þá tek ég undir með embætti landlæknis um mikilvægi þess að taka upp heildrænt lýðheilsumat á öllum fyrirhuguðum aðgerðum og lagasetningum sem gætu haft áhrif á lýðheilsu og að hægt sé að benda á Finnland sem fyrirmynd í þeim efnum.

Herra forseti. Ég styð heils hugar breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um að gera þær breytingar á lögum um tekjuskatt sem duga til að Grindvíkingar sem fengu vexti og verðbætur felldar niður á húsnæðislánum sínum þurfi ekki að bera skatt af þeirri aðgerð bankanna. Þó er ástæða til að benda á að þeir Grindvíkingar sem eru með húsnæðislán frá lífeyrissjóðum hafa ekki enn fengið niðurfellingu vaxta og verðbóta líkt og viðskiptavinir bankanna. Það verður ekki við það unað að sá hópur verði skilinn eftir með fjárhagsbyrði að þessu leyti eftir hamfarirnar í Grindavík. Heimildin greinir frá því á vef sínum að forystumenn stéttarfélaga í Grindavík hafi ásamt formanni VR staðið fyrir reglulegum mótmælum við skrifstofu Gildis undanfarið til að þrýsta á að sjóðurinn gefi eftir vexti og verðbætur sem safnast á íbúðalán Grindvíkinga líkt og viðskiptabankarnir þrír, Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki, hafi þegar ákveðið að gera. Síðustu mótmæli fóru fram á mánudag. Þar ávarpaði Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, mótmælendur og sagði að þetta væru ekki stórar fjárhæðir fyrir sjóðinn og hann væri að leita allra leiða til að koma til móts við Grindvíkinga með sama hætti og bankarnir hefðu gert. En í gær sendu lífeyrissjóðirnir frá sér yfirlýsingu um að sjóðunum væri óheimilt samkvæmt lögum að gera það sama og bankarnir en útilokuðu þó ekki að einstaka sjóðir færu yfir það með viðskiptavinum sínum hvað gera mætti. Einar Hannes Harðarson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, sagði kröfuna skýra. Hann vilji sjá það að lífeyrissjóðirnir geri nákvæmlega það sama og bankarnir; felli niður vexti og verðbætur. Ef lífeyrissjóðirnir megi ekki bregðast við þegar náttúruhamfarir dynja yfir þá eigi þeir ekkert erindi á lánamarkað. Einar er sjálfur ekki með lán hjá Gildi en segir marga félagsmenn sína vera í þeirri stöðu. Heimildin vitnar í orð Einars, með leyfi forseta:

„Það er fullt af fólki sem á um mjög sárt að binda. Húsið þeirra er ónýtt og það á enn að borga af því, það fær ekki vexti og verðbætur niðurfelld. Ef þessi hús verða dæmd ónýt, og þú ert með lán hjá Gildi, þá er það að rýra eignarhlutinn um kannski einhverjar milljónir og greiðslur frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands munu rýrna í kjölfarið. Þetta er galið.“

Forseti. Við þurfum öll að standa með Grindvíkingum, bæði efnahagslega og félagslega, í þeirri erfiðu og ótrúlegu stöðu sem þau búa við nú um stundir. Það þarf að fara yfir þau lög sem eiga að tryggja fólk fyrir slíkum hamförum. Það þarf einnig að gæta að þeim sem ekki geta hugsað sér að flytja aftur til Grindavíkur, jafnvel þó húsin þeirra séu óskemmd. Það gengur ekki að skilja íbúa Grindavíkur eftir eignalausa og skulduga eftir hamfarir sem enginn gat ráðið við. Ég treysti á að við stöndum öll saman um það.

En að lokum, forseti, þá er ég ánægð með að það eigi að fresta því að setja virðisaukaskatt á rafmagnshjól því það er umhverfisvænn ferðamáti að ferðast um á rafmagnshjóli og það er líka heilsusamlegt. En í dag kom breytingartillaga frá hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar um ívilnanir til bílaleiga og satt að segja, forseti, (Forseti hringir.) get ég ekki tjáð mig um þá tillögu því að hún hefur ekki fengið næga umfjöllun í nefndinni. Við fjöllum um hana á morgun en þá verður þessari umræðu væntanlega lokið.