skattar og gjöld.
Herra forseti. Fyrst hér að niðurlagi hv. þingmanns varðandi þessa breytingartillögu sem ég er að flytja þá hefur hv. efnahags- og viðskiptanefnd borist til að mynda erindi frá fjármálaráðuneytinu sem reifar þetta mál og þetta hefur líka áður komið til kasta þingheims, síðast 2021. Um þetta verður fjallað nánar í efnahags- og viðskiptanefnd á morgun.
Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í eru nokkur atriði sem komu fram í um margt ágætri ræðu. Í fyrsta lagi var fjallað um orsök verðbólgu og ferðaþjónustan dregin inn í það með um margt áhugaverðum punktum. Hv. þingmaður gat þess ekki að orsök hárrar verðbólgu á Íslandi gæti verið mjög há laun, það er miklu hærri launahækkun á Íslandi en gengur og gerist í samanburðarlöndunum. Ég vil því spyrja hv. þingmann: Er það þáttur sem hann telur engu máli skipta, hvað laun hækka mikið á Íslandi? Getur verið orsakasamband milli launahækkana umfram framleiðni, sem hv. þingmaður fór ágætlega yfir, og umfram framleiðniaukningu? Getur það verið einhver orsök verðbólgu?
Í annan stað fjallaði hv. þingmaður um gistináttaskatt og mátti heyra að sá skattur væri hv. þingmanni ekki þóknanlegur. En það er þó tekið fram í nefndaráliti meiri hlutans að það stendur einmitt yfir vinna og það er alveg ljóst að gistináttaskattur í þeirri mynd sem birtist í þessum tillögum er ekki kominn til að vera. En er það rétt, herra forseti, heyrði ég hv. þingmann vera að leggja til að gistiþjónusta fari úr lægra virðisaukaskattsþrepi yfir í hærra virðisaukaskattsþrep? Var það það sem hv. þingmaður var að reifa hér?