154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

almannatryggingar.

578. mál
[21:34]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, eingreiðslu. Ég fagna því heitt og innilega að þetta mál sé komið og ég tek undir það og vona að það verði allt gert til að sjá til þess að þessar 66.381 kr., skatta- og skerðingarlaust, verði borgaðar út fyrir jól. Ekki veitir af. Það sem er kannski sorglegast við þetta mál er að það er samt hópur sem hefði svo sannarlega átt að fá þessa greiðslu upp á 66.381 kr., rétt rúmlega 2.000 manns, og af þeim eru 1.000 einstaklingar sem eru að detta út af örorkubótum og verða ellilífeyrisþegar og er grimmilega refsað fyrir það. Það er auðvitað algerlega óskiljanlegt fyrirbrigði að löggjöfin skuli vera þannig að einhverjum aðilum sé refsað fyrir það að vera veikir alla sína tíð og reyna bæði að eiga við sín veikindi og lifa í kerfi þar sem greiðslur eru jafnvel vel undir fátæktarmörkum, að þeim sé síðan refsað aftur illilega við það eitt að verða 67 ára og fara yfir í ellilífeyriskerfið.

Síðan er líka þarna inni hópur sem er ekki stór en samt sá verst setti í ellilífeyriskerfinu, sem er með 10% minna en nemur lægsta ellilífeyri og ekki nóg með það heldur fær krónu á móti krónu skerðingu á hverri einustu krónu sem kemur inn, öllum tekjum, ein króna inn, ein króna út. Þessi hópur hefði svo sannarlega átt rétt á því og ekki veitt af að fá 66.381 kr., en það náðist ekki í gegn. En við þökkum þó fyrir það að öryrkjar eru að fá þetta. Skýringin hefur verið sú að vegna samkomulags á sínum tíma sem var gert við ellilífeyrisþega þegar bótaflokkar voru sameinaðir séu þessar greiðslur inni.

Ef við tökum bara dæmi þá hefur þessi ríkisstjórn sparað sér tugmilljarða á því að hafa ekki enn þá samið við örorkulífeyrisþega um endurskoðun á þeirra kerfi. Því miður er staðreyndin sú að þar hafa menn dregið lappirnar. Það hefði átt að vera fyrir löngu búið að taka á því kerfi og koma því í lag. Sú staðreynd blasir líka við þegar verið er að tala um að endurskoða almannatryggingakerfið og sérstaklega örorkulífeyriskerfið að þá þarf að taka inn kjaragliðnunina í því kerfi sem er og uppreikna hana. Ef það væri gert eins og ætti að gera, bæði kjaragliðnunina, persónuafsláttinn og launaþróunina, allt væri tekið inn í það kerfi, þá væri útgreiðslan úr því kerfi í dag 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Við getum látið okkur dreyma um að það verði þannig og við í Flokki fólksins munum svo sannarlega berjast fyrir því að það verði þannig. En ég óttast það, vegna þess hversu langan tíma það hefur tekið að endurskoða örorkukerfið og það er komið fram yfir mitt tímabil þessarar ríkisstjórnar og ekki er farið að bóla á endurskoðun kerfisins enn þá, að það muni sennilega dragast. Mér skilst að það séu ýmsir þröskuldar í veginum. En við getum þó alla vega huggað okkur við það að það sem við erum að ræða hér, þessar 66.381 kr., munum við keyra vonandi í gegn sem fyrst, það verði samþykkt og greitt fyrir jól.

En ég ætla, með leyfi forseta, að flytja breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, eingreiðsla, frá Ingu Sæland, og hún hljóðar svo:

„Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir einstaklingar sem eiga rétt á greiðslu ellilífeyris skv. 17. gr. á árinu 2023 og hafa óskertan ellilífeyri almannatrygginga skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 66.381 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2023, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.“

Í greinargerð kemur þetta fram:

„Lagt er til að tryggja þeim ellilífeyrisþegum sem fá á árinu 2023 óskertan ellilífeyri almannatrygginga sambærilega eingreiðslu og mælt er fyrir um í 1. gr. frumvarpsins til öryrkja og endurhæfingarlífeyrisþega. Um er að ræða tekjulægsta hóp ellilífeyrisþega sem hafa svo lágar lífeyristekjur að þær leiða ekki til skerðingar á ellilífeyri þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins nær tillagan til 2.135 manns, þar af 1.007 manns sem fá nú ellilífeyri í stað örorkulífeyris.“

Þar með endar sú breytingartillaga og ég verð bara að segja að þessi tillaga ætti eiginlega að renna í gegn. Við erum að tala um einhverjar 140 milljónir í viðbót og ef við setjum það í samhengi við það sem er búið að vera að gera hér í þessum sal og er verið að samþykkja í fjárlögum þá eru þetta smáaurar, algjörir smáaurar. Ef við tökum dæmi þá er verið að samþykkja hér næstum 700 millj. kr. til einkarekinna fjölmiðla, frjálsra fjölmiðla svokallaðra, sem fá það sem ríkisstyrk. Það sem var eiginlega fáránlegast í því öllu, með launa- og verðlagsuppreikning á því dæmi, var 10,6% hækkun%, hér á milli ára er verið að hækka um 7%. Þannig að í sjálfu sér segir þetta okkur að það eru til peningar. En einhverra hluta vegna telur þessi ríkisstjórn sig ekki hafa 140 milljónir handa þessum verst setta hópi ellilífeyrisþega. Við erum ekki bara að tala um ellilífeyrisþega, við erum líka að tala um 1.007 öryrkja. Fólk hættir ekkert að vera öryrki við það að verða 67 ára. Fólk læknast ekki af veikindum sínum þegar það verður 67 ára, ég tala nú ekki um fólk sem er veikt frá fæðingu, það er ekkert betur statt við að verða 67 ára, það er verr statt heldur en aðrir og ætti þar af leiðandi einmitt að fá þessa greiðslu og jafnvel meira. En í kerfinu erum við með þessa einstaklinga þannig að við lækkum þá um 28.000 kr. á mánuði eftir skatt fyrir það eitt að verða 67 ára.

Ég segi fyrir mitt leyti að þetta bara stenst ekki og er okkur til háborinnar skammar að við skulum ekki sjá hvað þetta er ofboðslega rangt. Auðvitað ættum við að breyta þessu, ganga í það, og mér skilst að það verði tekið á þessu þegar örorkukerfið verður endurskoðað.

Ég hef líka bent á að þarna er aðallega um að ræða aldurstengdu uppbótina sem auðvitað á að fylgja öryrkjum út ævina vegna þess að í flestum tilfellum eru þessir einstaklingar ekki að fá krónu úr lífeyrissjóðum og þar af leiðandi ætti þetta að vera nokkurn veginn þeirra lífeyrissjóður og ætti bara að vera sjálfsagt mál og er eiginlega óskiljanlegt að það skuli ekki vera gert. Það er enn þá óskiljanlegra þegar miðað er við hvað ríkisstjórnin hefur sparað sér rosalega mikinn pening, tugi milljarða, á því að hafa ekki samið við öryrkja en samið við ellilífeyrisþega og líka það að allir lofuðu að taka út krónu á móti krónu skerðingarnar en þær enduðu í 65 aurum á móti krónu sem var bara smávægileg breyting, allt of lítil breyting. Þar er undir sérstaka uppbótin sem er auðvitað alveg skelfileg gjörð sem þarf að breyta vegna þess að það gengur ekki upp, í því samhengi þegar verið er að tala um að einstaklingar geti haft núna 200.000 kr. frítekjumark atvinnutekna — þeir hafa það ekkert sem eru með sérstöku uppbótina, þeir hafa það ekkert sem eru með húsnæðisuppbótina, þeir hafa það ekkert sem eru með aldurstengdu uppbótina. Það er auðvitað bara verið að plata fólk og fólk rekur sig á svakalegan vegg ef það fer að vinna, það fær bakreikning upp á nokkur hundruð þúsund eftir á, 1. júlí, og þarf að greiða allt til baka. Það kemst að því þá að það hefur verið platað upp úr skónum. Það er skelfilegt að verða var við það að einstaklingar sem hafa nýlega farið í Tryggingastofnun og spurt hvort þeir megi vinna fyrir 200.000 kr. hafa fengið svarið: Já, þú mátt vinna fyrir 200.000 kr. En það er bara rangt. Þeir mega það ekki vegna þess að ekki króna af 200.000 kr. skilar sér í þeirra vasa, þeir þurfa að endurgreiða þetta allt. Það vill enginn vinna vinnu sem þú færð ekkert borgað fyrir heldur veldur þér bara kostnaði. Það er ekki gott.

En þetta mál er hið besta mál, að það skuli þó alla vega verið að ganga frá því og tryggja það að 66.381. kr. muni skila sér. Ég veit að það vilja allir drífa í þessu til að greiðslan skili sér örugglega fyrir jól. Ég vona heitt og innilega að breytingartillagan verði samþykkt hér í þinginu þannig að þessir 2.135 einstaklingar, þar af 1.007 öryrkjar sem eru að verða ellilífeyrisþegar, fái þessar 66.381 kr. einnig, sem kostar litlar 140 milljónir. Smáaurar í öllu samhenginu.